Elfar Árni af­greiddi Vestra

Einar Kárason skrifar
Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði tvö mörk í dag.
Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði tvö mörk í dag. Vísir/Hulda Margrét

Elfar Árni Aðalsteinsson var maður dagsins þegar KA vann 2-1 sigur á Vestra í neðri hluta úrslitakeppninnar en Vestramenn hefðu nánast bjargað sér frá falli með sigri. 

Bæði mörk Elfars komu í fyrri hálfleik þar af það fyrra eftir aðeins 22 sekúndur. Vestramenn minnkuðu muninn í blálokin en það var ekki nóg.

Með þessum sigri ná KA-menn fjögurra stiga forskoti í neðri hlutanum en Fram á leik inni. Vestramenn eru aftur á móti þremur stigum á undan HK en Kópavogsliðið á leik inni.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi á eftir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira