Handbolti

Snorri fagnar á­kvörðun Arons: „Mér finnst þetta virðingar­vert“

Sindri Sverrisson skrifar
Aron Pálmarsson er fyrirliði íslenska landsliðsins sem Snorri Steinn Guðjónsson stýrir.
Aron Pálmarsson er fyrirliði íslenska landsliðsins sem Snorri Steinn Guðjónsson stýrir. Samsett/Vilhelm

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari fagnar því að Aron Pálmarsson sé aftur að fara að spila með liði í Meistaradeild Evrópu, og segir það lýsandi fyrir persónueinkenni landsliðsfyrirliðans.

Aron, sem orðinn er 34 ára gamall, er genginn til liðs við Veszprém í Ungverjalandi, frá FH, og skrifaði hann undir samning sem gildir út næstu leiktíð.

„Fyrir mig sem landsliðsþjálfara þá er þetta auðvitað jákvætt. Maður vill hafa sína leikmenn í sem bestum liðum, en að sama skapi að spila. Hann er fara í umhverfi sem er í heimsklassa. Hann þekkir þjálfarann og fullt af leikmönnum í liðinu,“ sagði Snorri á blaðamannafundi HSÍ í höfuðstöðvum Arion í Borgartúni í dag.

Aron er á sínum stað í íslenska landsliðshópnum sem byrjar undankeppni EM 2026 á því að mæta Bosníu hér á landi 6. nóvember, og svo Georgíu í Tbilisi 10. nóvember. Hann ætti svo að vera kominn vel í gang með Veszprém þegar HM hefst í Króatíu í janúar.

„Mér finnst þetta virðingarvert, að hann skuli á sínum tíma taka þá ákvörðun að flytja heim, út af alls konar hlutum, verða Íslandsmeistari með sínu uppeldisfélagi en hafa samt ennþá þetta hungur til að vilja fara út og kasta sér út í þann pakka. Þetta er örugglega ekkert auðvelt, að skilja við sitt uppeldisfélag á miðju tímabili, og þess vegna finnst mér þetta virðingarvert,“ sagði Snorri í dag.

Hefði alveg getað valið önnur lið og farið auðvelda leið

Landsliðsþjálfarinn sagði það sýna úr hverju Aron væri gerður, að hann veldi það að fara aftur til Veszprém eftir stormasaman viðskilnað árið 2017 þegar hann gekk í raðir Barcelona.

„Mér finnst þetta lýsa karakter Arons vel. Að skilja allt eftir í reyk hjá Veszprém en vilja samt fara þangað aftur og klára óklárað verk, eins og hann orðaði það sjálfur. Hann hefði alveg getað valið einhver önnur lið sem voru líka á eftir honum, og farið auðvelda leið, en þetta finnst mér lýsa honum vel sem karakter.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×