Fótbolti

Kane allt í öllu í sigri Bayern

Sindri Sverrisson skrifar
Harry Kane og Kingsley Coman fagna marki gegn Union Berlín í dag.
Harry Kane og Kingsley Coman fagna marki gegn Union Berlín í dag. Getty/Sven Hoppe

Harry Kane var aðalmaðurinn í 3-0 sigri Bayern München gegn Union Berlín í þýsku 1. deildinni í fótbolta í dag.

Kane skoraði tvö marka Bayern og lagði upp eitt fyrir Kingsley Coman.

Michael Olise krækti í vítaspyrnu fyrir Bayern eftir korters leik og Kane skoraði fyrsta mark leiksins af öryggi úr henni. Annað mark leiksins kom svo rétt fyrir hálfleik þegar Kane kom boltanum á Coman sem skoraði.

Þriðja markið skoraði Kane snemma í seinni hálfleik, eftir að Coman kom boltanum á hann eftir fyrirgjöf frá Olise.

Bayern er nú þremur stigum á undan RB Leipzig á toppi deildarinnar en hefur leikið einum leik meira. Leipzig sækir Dortmund heim í lokaleik dagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×