McGregor sakaður um nauðgun Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 6. nóvember 2024 07:01 Conor McGregor. Vísir/Getty Bardagakappinn Conor McGregor er sakaður um að hafa nauðgað konu í Dublin á Írlandi árið 2018.
Hinn 36 ára gamli McGregor mætti fyrir dómara á þriðjudag þar sem lögmaður konunnar sagði hennar hlið á málinu. McGregor neitar sök og segja lögmenn hans að konan sé að reyna kúga pening úr UFC-stjörnunni. Irish mixed martial arts fighter Conor McGregor raped a woman in a Dublin hotel, the city's High Court has been told.— Sky Sports News (@SkySportsNews) November 5, 2024 McGregor var einnig sakaður um kynferðisofbeldi á síðasta ári en þá í Bandaríkjunum. Það mál var fellt niður. Hvað þetta mál varðar þá segir í frétt Sky Sports að um sé að ræða atvik frá 9. desember 2018. Um er að ræða skaðabótamál en ekki kemur fram hversu miklar skaðabætur konan fer fram á. Lögmaður konunnar fór yfir frásögn hennar fyrir dómi, þar segir að konan og McGregor hafi þekkt hvort annað lengi vel enda á svipuðum aldri og frá sama svæði. Kvöldið 9. desember 2018 hafi hún verið úti að skemmta sér ásamt vinkonu sinni þegar hún hafði samband við McGregor sem var einnig úti að skemmta sér. Töldu vinkonurnar að þær væru á leið í frekari skemmtun á skemmtistöðum borgarinnar en eftir að McGregor sótti þær hafi bílstjóri hans keyrt með þau á Beacon Hill-hótelið. Þar hafi þau ásamt nokkrum öðrum haldið áfram að drekka áður en McGregor hafi ítrekað reynt að fá hana með sér inn í svefnherbergi. Hún hafi neitað þar sem hún væri í sambandi og á blæðingum. Sky greinir frá því að á endanum hafi McGregor náð konunni inn í svefnherbergi þar sem hann hélt henni niðri í rúminu áður en hann sneri henni við og tók hana hálstaki með þeim afleiðingum að hún náði ekki andanum. Lögmaður konunnar sagðist vera með myndir sem sýndu hversu marin hún var og að úlnliðir hennar hefðu verið bláir eftir átökin. Einnig mun hún hafa verið með fjölda skurða eftir að hafa reynt að verja sig og þá voru fjórar af gervinöglum hennar brotnar. Morguninn eftir hafi konan heimsótt móður sína og í kjölfarið hafi verið ákveðið að hringja á sjúkrabíl. Þar hafi hún skolfið af sársauka og grátið meðan hún var skoðuð af lækni sem staðfesti fjölda áverka á líkama hennar. A woman who alleges she was raped by MMA star Conor McGregor has been giving evidence in her civil action for damages against the MMA fighter. Nikita Ní Laimhín, or Nikita Hand, claims the sexual assault occurred in a Dublin hotel in 2018. McGregor denies the allegation. pic.twitter.com/U7ChVVqZoi— Virgin Media News (@VirginMediaNews) November 5, 2024 Írski hluti miðilsins Mirror greinir frá talsvert fleiri upplýsingum en Sky og vitnar í Dr. Daniel Kane, lækninn á vakt þegar konan kom á sjúkrahúsið. Hann lýsir meðal annars marblettum og skurðum á mun fleiri stöðum en aðeins úlnliðum konunnar. Þá var konan með túrtappa skorðaðan ofarlega í sköpum sínum. Þurfti læknirinn að nota töng til að ná túrappanum út. Talið er það taki um tvær vikur að komast að niðurstöðu í málinu.
MMA Kynferðisofbeldi Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Fleiri fréttir Kanada - Bosnía | Annar opnunarleikur HM Bein útsending: Icebox 10 Fékk aftur verðlaunasæti í Formúlu 1 sex dögum eftir harða refsingu Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM „Hafið þið ekki horft á leikina?“ Ísland og Danmörk mætast í hnefaleikahringnum í kvöld Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Dagskráin: Stærsta boxmót ársins á Íslandi Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Jesús áfram í Stjörnunni Bestu-deildarpar á von á barni saman Sjá meira