Lífið

Skot­heldar hug­myndir fyrir feðradaginn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Feðradagurinn verður haldinn hátíðlega næstkomandi sunnudag en hann var í fyrsta sinn haldinn hér á landi árið 2006.
Feðradagurinn verður haldinn hátíðlega næstkomandi sunnudag en hann var í fyrsta sinn haldinn hér á landi árið 2006.

Feðradagurinn er haldinn hátíðlegur næstkomandi sunnudag. Dagurinn þar sem hefð er fyrir því að gleðja og dekra við feður landsins. Að eiga góðan pabba er svo sannarlega mikið gæfuspor og gerir lífið miklu betra. Í tilefni dagsins má gleðja feður með góðu knúsi, gjöf eða ljúffengum kræsingum.

Feðradagurinn var í fyrsta sinn haldinn hátíðlegur hér á landi árið 2006. Þess má geta að mæðradeginum hefur verið fagnað hér á landi síðan árið 1934 en hann ber jafnan upp annan sunnudag í maí.

Hér að neðan má finna nokkrar skotheldar hugmyndir fyrir feðradaginn.


Ljúf morgunstund

Færið pabba gamla kaffibollann í rúmið og góðu knúsi. Þá er fátt betra en heimatilbúinn dögurður með fjölskyldunni á sunnudagsmorgni.

Getty

Góð steik og meðí!

Leiðin að hjarta mannsins er oft sögð í gegnum magann. Góð steik og meðlæti ætti því að vera skothelt á sunnudaginn.

Getty

Kósí-karl

Nýir inniskór, náttföt eða góð bók. 

Notaleg samvera

Farðu með pabba gamla á listasafn, í leikhús, kaffihús eða í göngutúr í náttúrunni. Gæðastund af bestu gerð.

Tjörnin í Reykjavík.Óli Már

Persónuleg gjöf

Góð gjöf þarf ekki að kosta skyldinginn, Gefðu gjöf sem kemur frá hjartanu eins og fallega mynd eða málaðan kaffibolla.

Getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.