Skoðun

Svalur, Valur og Hvalur

Þorvaldur Logason skrifar

Þetta er stutt fréttaskýringin á hvalveiðidramatík síðustu daga ykkur til upplýsingar. Augljóslega vilja allir vita hver sökkti hvalveiðiskipinu áður en það sigldi úr höfn úr Sveppaborg. Þar að segja hver var svo ósvífinn að sökkva hvalveiðiskipi Sveppasveitarinnar enn einu sinni? Voru það kannski alveg sömu alþjóðlegu glæpamenn og áður?

Ykkur til hjálpar er hér útlistun á helstu leikendum í kvalaveiðisögu síðustu daga:

Svalur og Valur

Obbosslega frægir blaðamenn í Sveppalandi. Svalur var einu sinni lyftudrengur í Sveppalandssjónvarpinu. Hann fékk það hlutverk að lyfta rannsóknarblaðamennsku í Sveppalandi á hærra plan. Með honum er vinur hans Valur. Hann er tvöfalt hærri, nánast með höfuðið í skýjunum, hvatvís draumóradrengur sem dreymir um spillingarlaust Sveppaland (gangi honum vel).

Sveppagreifinn

Vinur þeirra Svals og Val. Hann er með doktorsgráðu í baneitruðum sveppum, spillingarsveppum og á það til að gera allt vitlaust.

Zorglúbb eða Sorg-klúbbi

Hann er háaldraður hvalvísindaveiðimaður með mikið mikilmennskubrjálæði. Planar í leynd heimsyfirráð yfir Sveppalandi í krafti fyrirtækisins Hvalur og sveppur hf.

Landsstjórinn í Sveppalandi

Langbesti vinur Sorgklúbbs. Saman eru þeir í Sveppasveitinni sem rúlar og gorkúlar í flestum vafasömum dæmum. Landsstjórinn og Sveppasveitin kenna hins vegar jafnan Sveppagreifanum eða Sval og Val um allt sem miður fer.

Don Engey Cortizone

Kóninn er alþjóðlega betur þekktur sem Lucky teflon, ótrúlega heppinn fulltrúi Sveppasveitarinnar sem tekst alltaf að forðast sveppvísina.

Tvöfaldi þríhyrningurinn

Alþjóðleg glæpasamtök, skuggalega sérhæfð í djöfullegum plottum.

Atburðarás

Leynilegir útsendarar Tvöfalda þríhyrningsins gjörplata son Landsstjórans í Sveppalandi til að játa fullkomlega og hreint út hrikaleg áform um sveppavitlausar hvalveiðar gegn alveg ákveðnum sveppapólitískum og gorgkúlandi fjármálagreiðum. Þeir taka upp alla dásemdina og senda heila klabbið á Sval og Val. Blaðamennirnir fagna þessu innilega og birta heimildirnar samstundis. Landsstjórinn í Sveppalandi brjálast eins og í sveppavímu og kennir Sveppagreifanum um allt saman, nema hvað? Sveppasveitin styður hann alveg fullkomlega og allt verður sveppavitlaust.

Hvað svo næst? Hefur Tvöfalda þríhyrningnum enn einu sinni tekist að sökkva hvalveiðibátum Sveppasveitarinnar í höfn Sveppaborgar á meðan sveppasötrandi vaktmenn sváfu á verðinum? Þurfa Svalur og Valur að fara í felur og starfa neðanjarðar, leita aftur í draumgóðu hippa-svepparæturnar? Við fylgjumst með og upplýsum ykkur. Sagan fæst líka á sveppabelgísku en þá kallast hún Spíró (Spirou) og Bjúró klikka á trúnó.

En eins og allir vita þá eru rannsóknarblaðamenn alltaf að klikka á trúnó.

Höfundur er heimspekingur og stjórnarformaður Gagnsæis, samtaka gegn spillingu.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×