Ritskoðun á heimsmælikvarða Hildur Þórðardóttir skrifar 18. nóvember 2024 07:33 Þegar skoðaðar eru fréttir frá hinum stærstu fjölmiðlum á Vesturlöndum má oft sjá nákvæmlega sama orðalagið í fyrirsögnunum. Þetta er sérlega áberandi í fréttum um loftlagsmál, leiðtogakosningar, gulu vestin í Frakklandi, Pútín Rússlandsforseta, útlendingamál, Covid og stríðið í Úkraínu. Samkvæmt rannsóknarstofnun í Sviss, Swiss Policy Research, sem rannsakar alþjóðamál og fjölmiðla, koma flest allar vestrænar fréttir frá aðeins þremur fréttaveitum: Reuters, Agence France-Presse (AFP) og Associated Press (AP). Að þetta sé ástæðan fyrir því að fréttir séu svo oft samhljóma sem raun ber vitni. Vandamálið er að þessar fréttaveitur eru ekki lengur hlutlausir aðilar eins og þegar þær voru stofnaðar, heldur allar komnar í eigu einkaaðila með ákveðin markmið í huga. 80% erlendra frétta koma frá PR fyrirtækjum Peter Phillips fjölmiðla- og stjórnmálafræðiprófessor við Sonoma háskóla í Kaliforníu og teymi hans hafa rannsakað samsetningu frétta og niðurstaða þeirra er að 80 prósent af öllum fréttum koma frá almannatengslafyrirtækjum sem vinna fyrir stórfyrirtæki, ríkisstjórnir, hernaðar- og leyniþjónustur og hina ofurríku sem sitja árlega í Davos og ræða framtíð mannkynsins. Þetta kemur fram í grein hans: Að selja heimsvaldastefnu, stríð og kapítalisma: Almannatengsl og áróðursfyrirtæki þjóna auðvaldinu, þ.e.a.s. tækniræðisauðvaldsstjórninni. Samkvæmt Peter Phillips „stendur heimurinn á okkar tímum frammi fyrir áróðurs-, hernaðar-, iðnaðar- og fjölmiðlaheimsveldi svo öflugu og flóknu, að sannleikurinn um alþjóðaviðburði er falinn hjá meirihluta fréttaveitna, upplýsingum hagrætt eða sleppt með öllu.“ Þetta var árið 2017. Einhliða áróður Stærstu fréttastöðvarnar flytja ekki lengur hlutlausar fréttir, heldur einhliða áróður með ákveðið markmið í huga. Sannleikanum er hagrætt til að leiða athygli almennings frá því sem raunverulega er að gerast, mótrök markvisst þögguð niður og lítið gert úr þeim sem tala gegn hinni einu viðurkenndu skoðun. Til að mynda hengdi RÚV alltaf orðið „fordæmalaus“ í hvert sinn sem þeir fjölluðu um innrás Rússa í Úkraínu, eins og til að gefa í skyn að við á Vesturlöndum höfum aldrei nokkurn tímann ráðist inn í önnur lönd. Sem er náttúrulega algjört bull. Til að kasta ryki í augu almennings er allt sem stangast á við hin samþykktu orðræðu kallað falsupplýsingar. Þessar þrjár stærstu fréttaveitur AP, AFP og Reuters hafa í mörg ár verið sjálfskipaðir „hliðverðir sannleikans“, sía út óæskilegar fréttir og margfalda áróður þegar svo ber undir. Trúverðuga fréttaframtakið Árið 2019 ákvað BBC að bæta um betur og stofna Trúverðuga fréttaframtakið eða Trusted News Initiative í félagi við aðrar stórar fréttaveitur og tæknirisa. Opinbera markmiðið var að „standa vörð um lýðræðislegar kosningar og spyrna gegn falsupplýsingum sem ógna lífi fólks.“ Aðalfélagar í samtökunum eru auk BBC, AP, AFP, CBC/Radio-Canada, European Broadcasting Union (EBU), Facebook, Financial Times, First Draft, Google, The Hindu, The Nation Media Group, Meta Microsoft, Reuters, Reuters Institute for the Study of Journalism, Twitter (nafninu var breytt í X til að losna undan þessum samningum), The Wall Street Journal og The Washington Post. Félagar láta hvern annan vita af „hættulegum“ upplýsingum til að minnka líkurnar á að þeir óafvitandi birti þær. Á lokuðum spjallvettvangi geta fréttamenn ráðfært sig við aðra innan samtakanna, auk árlegra ráðstefna til hnykkja enn frekar á stefnunni. Með öðrum orðum er þetta ritskoðun á heimsmælikvarða og þannig hefur þeim tekist að þagga niður vísindalega gagnrýni. Alvöru vísindamenn vita að vísindi byggjast á því að spyrja nýrra spurninga og halda áfram að leita að nýjum niðurstöðum. Vísindi sem ekki eru í endurskoðun staðna og með þeim staðnar samfélagið og afleiðingin er fáfræði og hnignun. Eitt helsta markmið framtaksins var að yfirtaka umræðuna um bóluefni og mála í jákvæðara ljósi, sérstaklega áður en Covid bóluefnin yrðu kynnt til leiks. Það tókst svo sannarlega þegar bóluefnin urðu „bjargvættur mannkynsins gagnvart kórónavírusnum“. Þess ber geta að fyrirtækið Pfizer styrkir marga fréttatíma á stóru miðlunum og hefur því bein áhrif á hvað þar kemur fram. Það er ekki lengur hægt að leita sannleikans með Google því þar birtist einungis það sem er samþykkt af Trúverðugu fréttaveitunni. Íslenskir fjölmiðlar fá sem sagt allt erlent efni frá fréttaveitum þar sem 80% koma beint frá PR fyrirtækjum eða svokölluðum hugsanaveitum, Think tanks, í eigu auðjöfra. Það er því ekki skrítið að fréttatímarnir beri keim af því. Blaðamenn fá ekki lengur að sinna hlutverki sínu, að veita yfirvöldum aðhald og vekja athygli almennings á því sem er raunverulega að gerast í heiminum, heldur er vinna þeirra fólgin í að þýða orðrétt fréttatilkynningar frá aðilum sem hafa ekki hagsmuni mannkynsins í huga. Það er kominn tími til að við förum að sjá í gegnum þetta. Höfundur er rithöfundur og skipar 2. sæti Lýðræðisflokksins í Reykjavík norður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Skoðun Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Í kjörklefanum erum við ein Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Sævar Helgi horfir heima Atli Viðar Thorstensen skrifar Skoðun Skiptir stærðin máli? Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Samvinna auðlindagreina styrkir allra hag Þorsteinn Másson skrifar Skoðun Ekki ert þú nú mikill maður Kristján Loftsson Kristján Logason skrifar Skoðun Spyrjið ykkur: Fyrir hvern vinnur íslenska krónan? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Þjóðarvarnarráðið hefur verið kallað saman af minna tilefni! Davíð Bergmann skrifar Skoðun Orðspor og ímynd bíður hnekki Haukur Hinriksson skrifar Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar
Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar