Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar 7. september 2026 07:32 Enn á ný virðist innviðaráðherra ætla að fara á svig við lög um ráðstöfun aflaheimilda í félagslega hluta fiskveiðistjórnunarkerfisins. Ekkert bólar enn á reglugerð um línuívilnun, skel- og rækjubætur og byggðakvóta, en ráðherra ber að að skipta aflaheimildum til línuívilnunar niður á fjögur þriggja mánaða tímabil í tilteknum hlutföllum og línuívilnun á að vera virk „frá og með upphafi fiskveiðiárs“. Á síðasta ári birtist umrædd reglugerð ekki fyrr en þegar langt var liðið á nóvember, sem augljóslega var brot á lögum, og nú óttast menn að sömu vinnubrögð verði viðhöfð. Fram til þess var úthlutuninkynnt strax í júlí og gefinn þannig fyrirvari til að ráða starfsfólk fyrir komandi fiskveiðiár, en aftur bíða menn annað hvort í óvissu eða skjóta út í bláinn. Línuívilnunin er forsenda þess að viðkomandi bátar haldist í rekstri og skapi atvinnu megnið af árinu bæði á sjó og í landi. Slíkur dráttur á birtingu reglugerðarinnar ber vott um mikla vanvirðingu við viðkomandi smábátaútgerðir, því mönnum er búin algjör óvissa um hvernig haga skuli rekstrinum. Hvernig stendur á því að ráðherra, sem að veit að hann er að fara á svig við lög, kemst upp með að gera það, ekki bara einu sinni heldur tvisvar á sama hátt? Í sumar var lítið mál fyrir innviðaráðherra að draga upp úr hatti aukakvóta, sem enginn veit hvaðan kom, fyrir strandveiðisjómenn, en nú þurfa heilsársútgerðir og beitningarfólk að bíða í óvissu eftir því að farið sé að gildandi lögum. Ef ráðherra hefur í hyggju að draga verulega úr aflaheimildum til línuívilnunar væri um að ræða verulega íþyngjandi breytingu með tilliti til fyrri stjórnsýsluframkvæmdar. Slíka breytingu þyrfti að kynna fyrirfram með skýrum og glöggum hætti og nægjanlegum fyrirvara. Útgerðir sem hafa reitt sig á línuívilnun, þyrftu að hafa raunhæft tækifæri til að bregðast við slíkri grundvallarbreytingu á rekstrarforsendum og gæta hagsmuna sinna. Þá er alveg skýrt að ráðherra er ekki heimilt án lagabreytingar að fella línuívilnun niður að fullu. Samþjöppun í sjávarútvegi hefur oft borið á góma. Afnám línuívilnunar mun valda því að þessir minni bátar, flestir ekki yfirbyggðir og hafa ekki pláss fyrir beitningavél, munu gefast upp. Það mun valda enn frekari samþjöppun og aðeins þeir stærstu munu geta keypt. En kannski er það einmitt sú samþjöppun sem ríkisstjórnin vill þrátt fyrir fagurgala um annað. Höfundur er smábátasjómaður og formaður Samtaka smærri útgerða. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar