Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Samúel Karl Ólason skrifar 23. nóvember 2024 08:34 Árás næturinnar jafnaði átta hæða hús við jörðu og skemmdi önnur nærliggjandi hús. AP/Hassan Ammar Umfangsmikil loftárás Ísraela í Beirút í Líbanon í nótt jafnaði að minnsta kosti eitt fjölbýlishús við jörðu. Að minnsta kosti fjórir eru látnir og rúmlega tuttugu særðir en talið er að báðar tölur muni hækka.
BBC hefur eftir fjölmiðlum í Líbanon að minnsta kosti fimm sprengjur hafi hæft átta hæða hús í Basa-hverfi Beirút í nótt, um klukkan fjögur að nóttu til. Svo virðist sem engar viðvaranir hafi verið gerðar, eins og Ísraelar hafa af og til gert í aðdraganda árása í borginni. Fjölbýlishúsið var jafnað við jörðu og önnur nærliggjandi hús skemmdust verulega. Ekki liggur fyrir hvert skotmark árásarinnar var en fregnir hafa borist af því að mögulega hafi það verið meðlimur í stjórnarráði Hezbollah. Ísraelar hafa fellt fjölmarga leiðtoga hryðjuverkasamtakanna á undanförnum mánuðum. Þar á meðal eru æðstu leiðtogar samtakanna og margir millistjórnendur. Sjá einnig: Felldu talsmann Hezbollah í miðborg Beirút Samkvæmt Reuters er þetta í fjórða sinn í þessari viku sem Ísraelar varpa sprengjum á miðja Beirút en hingað til hafa árásir þeirra að mestu verið gerðar á sunnanverð úthverfi borgarinnar, þar sem ítök Hezbollah hafa verið mikil í gegnum tíðina. Fréttamaður BBC birti meðfylgjandi myndband eftir árásina í nótt. Videos coming from the attack site in Basta, central Beirut are terrifying.This one shows the extent of the destruction. Apart from the building that was flattened, several other buildings have been badly damaged. This happened at 0400 when people were sleeping. pic.twitter.com/E3v7iMmS5N— Nafiseh Kohnavard (@nafisehkBBC) November 23, 2024 Eftir árás næturinnar gerðu Ísraelar einnig árásir í suðurhluta Beirút sem herinn segir að beinst hafi gegn stjórnstöð Hezbollah, vopnageymslu og öðrum skotmörkum. Í yfirlýsingu frá hernum segir að skotmörkin hafi verið meðal íbúðarhúsa en gripið hafi verið til aðgerða til að draga úr mannfalli meðal óbreyttra borgara. Þar á meðal hafi fólk verið varað við því að yfirgefa svæðið í aðdraganda árásanna. מטוסי קרב של חיל האוויר, בהכוונת אגף המודיעין, תקפו מספר מפקדות, מחסן אמצעי לחימה ותשתיות טרור נוספות של חיזבאללה במספר גלי תקיפות במרחב הדאחייה שבביירות ביממה האחרונה>> pic.twitter.com/xjFCgWGitH— צבא ההגנה לישראל (@idfonline) November 23, 2024 Fréttamaður BBC á svæðinu sagði íbúa þriggja bygginga í suðurhluta Beirút hafa verið varaða við og þeim gert að yfirgefa hús sín. Ísraelar og Hezbollah, sem njóta stuðnings klerkastjórnar Íran, hafa lengi eldað grátt silfur saman. Átökin þeirra á milli náðu nýjum hæðum þegar Hezbollah-liðar hófu eldflaugaárásir sínar á Ísrael þann 8. október, eftir að Ísraelar hófu árásir á Gasaströndina. Um sextíu þúsund Ísraelar hafa þurft að flýja heimili sín vegna þessara árása. Ísraelar hafa gert umfangsmiklar og mannskæðar loftárásir í Líbanon og gerðu innrás í ríkið fyrr í haust, með því yfirlýsta markmiði að reka Hezbollah-liiða frá suðurhluta Líbanon. Að minnsta kosti 3.500 manns liggja í valnum eftir árásir Ísraela í Líbanon, samkvæmt yfirvöldum þar, og rúm milljón manna hafa þurft að flýja heimili sín.
Líbanon Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Hernaður Tengdar fréttir Heitir peningaverðlaunum og lausn þeim sem frelsa gísla Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hefur heitið þeim fimm milljónir dala sem frelsar gísl úr prísund sinni á Gasa. Þá lofar hann því að viðkomandi og fjölskylda hans fái að yfirgefa Gasa og komast í öruggt skjól. 20. nóvember 2024 08:03 Felldu talsmann Hezbollah í miðborg Beirút Aðaltalsmaður Hezbollah-samtakanna féll í loftárás Ísraelshers á miðborg Beirút í Líbanon í dag. Ísraelar hafa gert harðar árásir á Líbanon undanfarnar vikur en fæstar þeirra hafa verið á miðborgina. 17. nóvember 2024 14:21 Naim Qassem tekur við stjórn Hezbollah Forsvarsmenn Hezbollah samtakanna í Líbanon tilkynntu í morgun að Naim Qassem myndi taka við stjórnartaumunum af Hassan Nasrallah, sem felldur var í loftárás í síðasta mánuði. Qassem var næstráðandi Hezbollah en Hashem Safieddine, sem var arftaki Nasrallah, var einnig felldur í loftárás í byrjun október. 29. október 2024 11:47 Mest lesið Eins og að vera staddur í martröð og geta ekki vaknað Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Innlent Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Erlent Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Innlent Spennandi og sögulegar kosningar: Fjórir flokkar berjast fyrir lífi sínu í fallbaráttu Innlent Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Innlent „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Innlent Hlutverk flokksforingja stórlega ofmetið í kosningabaráttunni Innlent Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Innlent Fleiri fréttir Uppnám á COP29 er fulltrúar þjóða strunsuðu út Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Høiby í vikulangt gæsluvarðhald Fara fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir stjúpsyninum NATO tryggi lykilinnviði eftir ætluð spellvirki í Eystrasalti Hlaut dauðadóm fyrir að eitra fyrir fjórtán vinum með blásýru Hótar að fella stjórnina í skugga „pólitísks dauðadóms“ Sjá meira
Heitir peningaverðlaunum og lausn þeim sem frelsa gísla Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hefur heitið þeim fimm milljónir dala sem frelsar gísl úr prísund sinni á Gasa. Þá lofar hann því að viðkomandi og fjölskylda hans fái að yfirgefa Gasa og komast í öruggt skjól. 20. nóvember 2024 08:03
Felldu talsmann Hezbollah í miðborg Beirút Aðaltalsmaður Hezbollah-samtakanna féll í loftárás Ísraelshers á miðborg Beirút í Líbanon í dag. Ísraelar hafa gert harðar árásir á Líbanon undanfarnar vikur en fæstar þeirra hafa verið á miðborgina. 17. nóvember 2024 14:21
Naim Qassem tekur við stjórn Hezbollah Forsvarsmenn Hezbollah samtakanna í Líbanon tilkynntu í morgun að Naim Qassem myndi taka við stjórnartaumunum af Hassan Nasrallah, sem felldur var í loftárás í síðasta mánuði. Qassem var næstráðandi Hezbollah en Hashem Safieddine, sem var arftaki Nasrallah, var einnig felldur í loftárás í byrjun október. 29. október 2024 11:47