Líbanon

Líbanon

Höfuðborg: Beirút. Mannfjöldi: 5,5 milljónir (2025). Flatarmál: 10.452 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Klukkan tifar og enn langt í land

Ekki hefur verið boðað opinberlega til fundar í friðarviðræðum Bandaríkjanna og Íran nú þegar um þrír dagar eru eftir af tveggja vikna vopnahléi ríkjanna. Forseti íranska þingsins segir viðræður um að binda enda á stríðið hafa „miðað áfram“ en ríkin séu „langt frá lokaviðræðum.“

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Líbanon verið hluti af sam­komu­laginu og Trump þurfi að velja

Forseti íranska þingsins segir búið að rjúfa þrjú ákvæði í tíu punkta tillögu Írans sem kvað á um tveggja vikna vopnahlé í átökum við Bandaríkin og Ísrael. Utanríkisráðherra Írans segir Bandaríkin þurfa að velja milli vopnahlés eða áframhaldandi stríðs. 

Erlent
Fréttamynd

Hormússund sagt lokað á ný

Stjórnvöld í Íran hafa lokað Hormússundi á ný vegna árása Ísraels á Líbanon, að sögn ríkismiðils í Íran. Bandaríkin og Íran sögðust í gær hafa komist að samkomulagi um tveggja vikna vopnahlé með því skilyrði að opnað yrði fyrir skipaumferð um sundið.

Erlent
Fréttamynd

Réðust fyrir­vara­laust á mið­borg Beirút

Tugir eru sagðir fallnir og hundruð særð eftir að Ísraelsher gerði fyrirvaralausar loftárásir á miðborg Beirút í Líbanon í dag. Ísraelar segja að vopnahlé sem þeir gerðu við Írani í gær nái ekki til árása þeirra á Hezbollah-samtökin í Líbanon.

Erlent
Fréttamynd

Hútar gerðu aðra á­rás á Ísrael

Uppreisnarhópur Húta í Jemen skaut eldflaugum og drónum á nokkur skotmörk í suðurhluta Ísrael í sinni annarri loftárás á landið í dag. Talsmaður Húta segir árásirnar hafa beinst að mikilvægum hernaðarinnviðum. 

Erlent
Fréttamynd

Ísraelar hyggjast her­nema suður­hluta Líbanon

Stjórnvöld í Ísrael hyggjast taka yfir suðurhluta Líbanon að ánni Litani, það sem þau kalla „öryggissvæði“. Áin liggur í um 30 kílómetra fjarlægð frá landamærum Ísrael og Líbanon. Að sögn utanríkisráðherrans Israel Katz munu Ísraelar einnig stjórna þeim brúm yfir ána sem enn standa.

Erlent
Fréttamynd

Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani

Að minnsta kosti tveir létust þegar Íranir skutu eldflaugum með klasasprengjum á Tel Aviv í nótt. Ríkismiðlar í Íran sögðu um að ræða hefndarárás vegna dráps Ísraelsmanna á Ali Larijani, yfirmanni öryggismála og einum helsta ráðgjafa Ali Khamenei.

Erlent
Fréttamynd

Á­rás gerð á sendi­ráð Banda­ríkjanna í Baghdad

Árásir Írana á skotmörk í nágrannaríkjunum héldu áfram í nótt og í morgun og sömuleiðis árásir Ísraelsmanna á skotmörk í Líbanon. Drónaárás var gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad í Írak og þá var gerð árás á lúxushótel í borginni sem er vinsælt meðal erlendra diplómata.

Erlent
Fréttamynd

Líbanon viður­kenni Ísrael sem ríki

Líbönsk stjórnvöld hafa samþykkt tillögu frá Frökkum sem leggur grunn að friðarviðræðum við Ísrael. Tillögurnar eru sagðar kveða á um að Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki en Ísraelsmenn búa sig nú undir aukinn landhernað í Líbanon í von um að leysa upp Hezbolla.

Erlent
Fréttamynd

Hóta höfnum eftir á­rás á „krúnudjásnið“

Bandaríkin gerðu árás á aðalútflutningshöfn Írana í nótt og írönsk stjórnvöld hóta nú að ráðast á hafnir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sem gæti valdið talsverðri stigmögnun á stríðinu í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaforseti heldur því fram að Bretar, Kínverjar og Frakkar ætli meðal annars að aðstoða við að tryggja örugga olíuflutninga um Hormússund en téð ríki eiga enn eftir að staðfesta það. Enn hefur ekkert sést til æðstaklerks Írans.

Erlent
Fréttamynd

Vaktin: Á­tökin breiðast enn út

Átökin í Mið-Austurlöndum halda áfram að breiða úr sér. Bandaríkjamenn og Ísraelar varpa enn sprengjum á skotmörk í Íran og Íranir halda áfram að svara fyrir sig með dróna- og eldflaugaárásum á nágrannaríki sín. Hezbollah lýsti í gær yfir stríði við Ísrael og gerðu Ísraelar nýja innrás í Líbanon í morgun. 

Erlent
Fréttamynd

Hundruð þúsunda far­þega stranda­glópar vegna stríðs í Íran

Hundruðum flugferða hefur verið aflýst í Miðausturlöndum og hundruð þúsunda farþega eru strandaglópar og helstu flugstöðvar í Mið-Austurlöndum eru lokaðar vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Íslendingar eru víða í vandræðum í Asíu og Miðausturlöndum vegna lokana.

Erlent
Fréttamynd

Felldu hátt­settan Hezbollah-liða í sprengju­á­rás á Beirút

Fimm létust í loftárás Ísraels á líbönsku höfuðborgina Beirút í dag, þar á meðal starfsmannastjóri hernaðarvægs Hezbollah. Tveimur dögum áður hafði forseti Líbanon lýst því yfir að hann væri tilbúinn í samningsviðræður við Ísraelsmenn. Nú íhuga Hezbollah-liðar að svara árásinni.

Erlent
Fréttamynd

Vilja af­vopna ein­angraða og veik­burða Hezbollah-liða

Háttsettur íranskur embættismaður fundaði á miðvikudag með ráðamönnum í Líbanon vegna áætlana um að afvopna Hezbollah-samtökin, sem hafa notið stuðnings frá klerkastjórninni í Íran frá því þau voru stofnuð á níunda áratug síðustu aldar.

Erlent