Fótbolti

Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu topp­liðið að stigum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Elías Rafn Ólafsson átti frábæran leik.
Elías Rafn Ólafsson átti frábæran leik. Manuel Alvarez/Getty Images

Danmerkurmeistarar Midtjylland eru jafnir FC Kaupmannahöfn að stigum á toppi efstu deildar þar í landi með 1-0 sigri á Silkeborg í kvöld. Elías Rafn Ólafsson stóð vaktina í marki meistaranna.

FCK vann Lyngby 2-1 á mánudag og því þurfti Midtjylland að vinna í kvöld. Eftir tvo tapleiki í röð tókst Midtjylland að snúa blaðinu við þökk sé sigurmarki Adam Buksa í fyrri hálfleik.

Gestirnir voru langt því frá lakari aðilinn. Íslenski markvörðurinn varði öll fjögur skot heimamanna og var stór ástæða þess að Midtjylland landaði þremur stigum.

Þegar 16 umferðir eru búnar í efstu deild Danmerkur eru FCK og Midtjylland með 30 stig hvort. Þar á eftir koma AGF og Randers með 27 stig á meðan Nordsjælland er með 26 stig og Silkeborg 25 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×