Í þessum fjórða þætti gefur Linda Ben okkur ýmis ráð varðandi jólabaksturinn, bakar sörur sem eru ómissandi hluti af jólunum hjá mörgum og sýnir hvernig er hægt að setja smákökur í fallegar gjafaöskjur.
Sörur
Byrjið á því að útbúa kremið.
Þeytið eggjarauður í hrærivél þar til blandan er orðin létt og ljós. Hitið vatn og sykur í potti í um 3 mínútur eða þar til sykurinn hefur náð að leysast upp í vatninu. Hellið sykurvatninu saman við eggjarauðurnar í mjórri bunu og hrærið rólega á meðan. Þeytið þar til blandan er loftmikil og nánast hvít að lit.
Bræðið súkkulaðið. Hellið því næst súkkulaðibráðinni saman við eggjablönduna í mjórri bunu og hrærið rólega á meðan.
Stoppið reglulega og skafið hliðar skálarinnar með sleikju svo allt blandist vel saman.
Skerið mjúka smjörið í litla bita og þeytið það saman við.
Geymið kremið inni í ísskáp í um klukkutíma eða á meðan verið er að útbúa botnana.
Eitt sett sörukrem
- 3 eggjarauður
- 100 g vatn
- 100 g sykur
- 300 g Eitt sett rjómasúkkulaði
- 100 g mjúkt smjör
Pralín sörukrem
- 3 eggjarauður
- 100 g vatn
- 100 g sykur
- 300 g Nóa pralínsúkkulaði
- 100 g mjúkt smjör

Klassískt sörukrem
- 3 eggjarauður
- 100 g vatn
- 100 g sykur
- 300 g Siríus suðusúkkulaði
- 100 g mjúkt smjör
- Kaffi eftir smekk
Botnar
- 3 eggjahvítur
- ⅓ tsk salt
- ⅓ cream of tartar
- 50 g sykur
- 200 g flórsykur
- 200 g möndlumjöl
Kveikið á ofninum og stillið á 175°C með yfir- og undirhita.
Setjið eggjahvítur í skál ásamt salti og cream of tartar, þeytið þar til blandan freyðir og bætið þá sykrinum út í. Þeytið þar til stífir toppar myndast.
Blandið saman flórsykri og möndlumjöli. Bætið út í eggjahvítublönduna og veltið varlega saman við með sleikju þar til samlagað.
Hellið deiginu ofan í sprautupoka með hringlaga stút.
Sprautið á smjörpappírsklæddar ofnplötur þannig að hver kaka sé u.þ.b. 4 cm í þvermál, passið að hafa u.þ.b. 2-3 cm bil á milli þeirra svo að þær klessist ekki saman í ofninum.
Bakið í u.þ.b. 12 mín. Leyfið kökunum að kólna.

Lokaskref
Smyrjið kremi á hverja köku svo það sé kúpt í miðjunni en þynnist út að köntunum. Kælið kökurnar í stutta stund.
Bræðið loks súkkulaði yfir vatnsbaði og hjúpið hverja köku með því að dýfa kreminu ofan í súkkulaðið.
Leggið kökurnar á grind á meðan súkkulaðið storknar.