Stórar fréttir úr Þorlákshöfn: Tomsick snýr aftur Sindri Sverrisson skrifar 5. desember 2024 11:58 Nikolas Tomsick kannast vel við sig í Þorlákshöfn. vísir/daníel Þór Þorlákshöfn hefur tryggt sér góðan liðsstyrk því félagið hefur endurheimt körfuboltamanninn öfluga Nikolas Tomsick. Samningur hans við félagið gildir út tímabilið.
Tomsick er Bandaríkjamaður og Króati sem spilaði með var í aðalhlutverki hjá Þór veturinn 2018-19, og skoraði þá að meðaltali 22,8 stig, gaf 7,6 stoðsendingar og tók 3,9 fráköst. Hann skilaði litlu síðri tölum hjá Stjörnunni veturinn eftir það og varð bikarmeistari með Garðbæingum, og var svo einnig lykilmaður hjá Tindastóli leiktíðina 2020-21, áður en hann kvaddi Ísland í bili. Næsti leikur Þórs er við Hött í kvöld, í Bónus-deildinni. Ljóst er að Tomsick er kominn með leikheimild fyrir þann leik en í samtali við Vísi vildi formaður Þórs, Jóhanna M. Hjartardóttir, þó ekki gefa upp hvort það yrði fyrsti leikur Tomsick. Tomsick, sem er 33 ára gamall, hefur spilað í Kósovó, Tékklandi, Belgíu og nú síðast Hollandi eftir að hann fór frá Íslandi. Þórsarar eru eitt af liðunum í 5.-8. sæti Bónus-deildarinnar, með átta stig eftir átta leiki, sex stigum á eftir efstu liðum Tindastóls og Stjörnunnar.
Bónus-deild karla Þór Þorlákshöfn Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Sjá meira