Sport

Guð­mundur bætti tuttugu og fimm ára gamalt met Arnar

Aron Guðmundsson skrifar
Guðmundur Leó stingur sér til sunds
Guðmundur Leó stingur sér til sunds Mynd: Sundsamband Íslands

Sundkappinn Guðmundur Leó Rafnsson úr ÍRB gerði sér lítið fyrir og bætti 25 ára gamalt unglingamet Arnar Arnarssonar á fyrsta keppnisdegi HM í tuttugu og fimm metra laug í Búdapest í morgun. 

Ísland átti fimm sundmenn sem syntu í fyrsta keppnishluta HM í morgun Guðmundur Leó bætti þar 25 ára gamalt unglingamet í 100m baksundi þegar hann synti á tímanum 52,69 sekúndur og varð í 40 sæti. Gamla metið átti Örn Arnarsson 53,13 sem hann setti á EM í tuttugu og fimm metra laug árið 1999.

Vala Dís Cicero synti 400m skriðsund á tímanum 4;16,11 og varð í 31 sæti. Jóhanna Elín Guðmundsdótir synti 50m flugsund á tímanum 27,30 og varð í 38 sæti og Símon Elías Statkevicus synti einnig 50m flugsund og varð í 49 sæti á 23.90

Birnir Freyr Hálfdánarson synti 200m fjórsund á tímanum 2:00,54 og varð í 36. sæti.

Á morgun miðvikudag syndir Snæfríður Sól Jórunnardóttir 100m skriðsund og Snorri Dagur Einarsson syndir 100m bringusund. En einnig verður Ísland með boðsund sveit í 4x50 fjórsundi og er þar um að ræða blandaða sveit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×