Innlent

Hvalveiðileyfið endur­nýjast út í eitt

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Hvalveiðar hafa verið pólitískt hitamál en hvalveiðiskip héldu ekki út til veiða í sumar.
Hvalveiðar hafa verið pólitískt hitamál en hvalveiðiskip héldu ekki út til veiða í sumar. Vísir/Egill

Fimm ára veiðileyfi Hvals hf. endurnýjast sjálfkrafa árlega og getur því að óbreyttu verið í gildi í áraraðir. Sambærilegt ákvæði um endurnýjun hefur ekki verið í fyrri leyfisveitingum Hvals samkvæmt upplýsingum frá matvælaráðuneytinu. 

Í leyfi Hvals hf. segir að leyfið framlengist árlega um eitt ár frá útgáfu þess hinn 4. desember síðastliðinn. Samkvæmt svari matvælaráðuneytisins þýðir þetta ákvæði að fimm ára leyfi tekur gildi á ný í desember á næsta ári og svo koll af kolli. Að óbreyttu og miðað við núgildandi lög og reglur eru ekki takmörk á því hversu oft leyfið endurnýjast. Getur það því verið grundvöllur veiða í áraraðir.

Orðið við óskum Hvals hf.

Í umsókn Hvals hf um leyfi til veiða á langreyðum var óskað eftir því að fyrirtækinu yrði annað hvort veitt ótímabundið leyfi eða til að minnsta kosti fimm eða tíu ára, með sjálfkrafa framlengingu við lok hvers starfsárs, til þess að tryggja fyrirsjáanleika í rekstri. Ráðuneytið varð því við þeirri kröfu fyrirtækisins.

Útgáfa Bjarna Benediktssonar, matvælaráðherra, á leyfi til hvalveiða vakti hörð viðbrögð.Vísir/Vilhelm

Útgáfa leyfisins hefur verið harðlega gagnrýnd af umhverfis- og dýravelferðarsamtökum og þá ekki síst í ljósi þess að leyfið var gefið út eftir kosningar af Bjarna Benediktssyni, matvælaráðherra í starfsstjórn. Stjórnarmyndunarviðræður Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins voru þá þegar hafnar en þingmenn flokkanna þriggja voru á meðal flutningsmanna frumvarps um bann gegn hvalveiðum sem lagt var fram á Alþingi í haust.

Á sama tíma hafa bæjarráð Akraness og formaður Verkalýðsfélags Akraness fagnað leyfisveitingunni og sagt mikilvægt að skapa fyrirsjáanleika í greininni.

Starfshópur sem vinnur að því að rýna lagaumgjörð hvalveiða er nú að störfum og á að skila til stjórnvalda skýrslu með tillögum að leiðum til úrbóta. Valkostir þar eiga bæði að taka mið af áframhaldandi veiðum sem og takmörkun eða banni við þeim til framtíðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×