Fótbolti

Juventus enn taplaust og á­fram í bikarnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dusan Vlahovic skoraði fyrir Juventus í bikarsigrinum í kvöld.
Dusan Vlahovic skoraði fyrir Juventus í bikarsigrinum í kvöld. Getty/Image Photo Agency

Juventus komst í kvöld áfram í átta liða úrslit ítölsku bikarkeppninnar í fótbolta.

Juventus vann þá 4-0 stórsigur á Cagliari á heimavelli sínum.

Dusan Vlahovic skoraði fyrsta markið á 44. mínútu og annað markið skoraði Teun Koopmeiners á 53. mínútu. Þriðja markið kom síðan á 80. mínútu og það skoraði Chico Conceicao.

Juventus var ekki búið að segja sitt síðasta því fjórða og síðasta markið kom á 89.mínútu og það skoraði Nicolás González.

Thiago Motta er á fyrsta tímabili með Juventus og liðið er bara í sjötta sæti í deildinni. Spurning hvort bikarinn verði þeirra vettvangur í vetur. Þeir hafa verið miklir jafntefliskóngar til þessa á leiktíðinni og Juve menn glöddust því örugglega mikið yfir sigri kvöldsins.

Juventus er reyndar enn taplaust á tímabilinu en tíu af sextán deildarleikjum liðsins hafa endað með jafntefli þar á meðal þeir fjórir síðustu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×