Fótbolti

„Eina sem ég hugsa um er að Liverpool vinni titilinn“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Mohamed Salah einbeitir sér að titilbaráttunni.
Mohamed Salah einbeitir sér að titilbaráttunni. Jan Kruger/Getty Images

Mohamed Salah átti enn einn stórleikinn er Liverpool vann öruggan 5-0 útisigur gegn West Ham í síðasta leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni áður en nýtt ár gengur í garð.

Salah skoraði eitt og lagði upp tvö í sigri Liverpool í kvöld og Egyptinn er nú kominn með 17 mörk og 13 stoðsendingar á tímabilinu. Í aðeins 18 leikjum.

Þetta var einnig áttundi leikurinn á tímabilinu þar sem Salah bæði skorar og leggur upp.

„Ég er ánægður með úrslitin. Við skoruðum snemma og vorum betri allan leikinn,“ sagði Salah í viðtali eftir sigurinn gegn West Ham.

Framtíð Salah er hins vegar í lausu lofti, en samningur hans við félagið rennur út í sumar. Egyptinn má því byrja að ræða við önnur erlend félög strax 1. janúar, en sjálfur segist hann ekki vera að hugsa um það á þessari stundu.

„Það eina sem ég er að hugsa um er að Liverpool vinni titilinn og ég vil vera hluti af því,“ sagði Salah.

„Ég mun gera mitt besta fyrir liðið svo við getum unnið deildina. Það eru nokkur lið sem eru að elta okkur og við þurfum að halda einbeitingu.“

„Ég er bara að reyna að njóta þess að spila. Við komum hingað til að ná í úrslit og ég vildi leggja mitt af mörkum í leiknum, en ég er eiginlega hungraður í meira.“

Að lokum var Salah spurður beint út í hvernig samningaviðræður við Liverpool væru að ganga. Hann gaf lítið upp í þeim málum.

„Við erum langt frá því að fara að ræða það. Ég vil ekki gefa neitt upp í fjölmiðlum á þessari stundu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×