Fótbolti

Af hverju er svona mikil­vægt að vinna riðilinn?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Besta sætið hefur trú á Jóni Degi í kvöld.
Besta sætið hefur trú á Jóni Degi í kvöld. vísir/Anton

Besta sætið er með fókusinn í Tallin í dag enda fer landsleikur Eistlands og Íslands fram þar í kvöld.

Toppsæti riðilsins er undir en það er gríðarlega mikilvægt að Ísland vinni sinn riðil. Það opnar á fleiri möguleika til þess að komast á EM.

Sindri Sverrisson fer ítarlega yfir það hversu miklu máli skiptir að vinna riðilinn. Það verða að koma þrjú stig í pokann í kvöld.

Leikurinn fer fram seint á staðartíma og aðstæður eru sagðar vera krefjandi. Erfiður völlur en það er sami völlur fyrir bæði lið eins og svo oft áður.

Leikurinn hefst 18.45 á íslenskum tíma og hefst upphitun á Sýn Sport fyrir leikinn klukkan 18.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×