Viðskipti innlent

Vig­dís frá Play til Nettó

Lovísa Arnardóttir skrifar
Vigdís segist þrífast best í umhverfi þar sem mikið er að gera.
Vigdís segist þrífast best í umhverfi þar sem mikið er að gera. Aðsend

Vigdís Guðjohnsen hefur tekið við stöðu markaðsstjóra Nettó. Vigdís hefur samkvæmt tilkynningu sérhæft sig í markaðssetningu samfélagsábyrgðar.

Vigdís kemur til Samkaupa frá flugfélaginu Play þar sem hún starfaði sem markaðsstjóri. Þar áður starfaði hún sem markaðsstjóri Skeljungs.

„Dagvörumarkaðurinn er spennandi geiri þar sem hlutir gerast hratt og það er alltaf er nóg að gera, og í þannig umhverfi þrífst ég best. Á sama tíma er spennandi að fá þetta tækifæri að fá taka þátt í að móta markaðsmál Nettó sem er frábær verslun á verðmætri vegferð að verða samkeppnishæfari á markaði, og ég hlakka því til að ganga til liðs við öflugt fyrirtæki eins og Samkaup,“ segir Vigdís í tilkynningu. 

Vigdís tekur við af Helgu Dís Jakobsdóttur sem hefur sinnt stöðu markaðsstjóra Nettó og mun taka við stöðu vöruflokkastjóra á innkaupa- og vörustýringarsviði Samkaupa að loknu fæðingarorlofi.

„Við erum virkilega ánægð að fá Vigdísi til starfa enda býr hún yfir gífurlega öflugri starfsreynslu og mikill sérfræðingur á sínu sviði. Við erum búin að vera í mikilli vinnu að styrkja Nettó á lágvörumarkaði ásamt ýmsum þáttum innan fyrirtækisins með það að markmiði að bjóða viðskiptavinum okkar upp á bestu mögulegu þjónustu og verð. Það eru spennandi tímar fram undan hjá Nettó og Samkaupum og ég er fullviss um að Vigdís mun hafa í nægu að snúast á næstu misserum,“ segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri verslunar- og mannauðssviðs í tilkynningu. 

Samkaup reka 60 verslanir víðs vegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslanamerki Samkaupa eru Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin, Háskólabúðin, Iceland og Samkaup strax.


Tengdar fréttir

Matvörumarkaðurinn harðnar og harðnar á Selfossi

Samkeppni á matvörumarkaði á Selfossi harðnar og harðnar því Nettó var að opna þar þúsund fermetra verslun en fyrir er Nettó með aðra verslun í bæjarfélaginu, auk þess að vera með Krambúð. Bónus og Krónan eru líka á Selfossi.

Verðstríð á jólabókamarkaði og hátt í þrefaldur verðmunur

Allt að þrefaldur verðmunur er á bókum milli verslana samkvæmt úttekt verðlagseftirlits ASÍ. Á þetta við jafnvel þótt umrædd bók sé ekki til sölu í lágvöruverslunum. Dýrastar eru bækurnar að jafnaði hjá Pennanum-Eymundsson og A4.

Lækka það sem fæst hjá öðrum en hækka hitt

Dæmi eru um að verð á vörum sem fást aðeins í einni verslunarkeðju hafi hækkað, á meðan verð á sambærilegum vörum sem eru fáanlegar víðar hafa lækkað. Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum könnunar verðlagseftirlits ASÍ. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×