Rannsóknir sýna að hreyfing er ein af mikilvægum forsendum heilbrigðis. Hreyfing úti í náttúrunni hefur enn meiri og margvísleg jákvæð áhrif á líkama og sál. Það er mikilvægt fyrir hvern og einn að sporna við kyrrsetu og stunda útivist og líkamsrækt sem mest með einhverjum hætti.

Ganga er góð hreyfing og er í senn bæði einföld og ódýr. Auðvelt er að fara í daglegar gönguferðir út frá heimili eða vinnustað og víða má finna góða göngustíga í nærumhverfinu. Gönguferðir úti í náttúrunni og til fjalla eru gefandi og skemmtilegar og fjallgöngur eru meira krefjandi og auka þol og þrek göngufólks til muna.
Það er frábær tilfinning að standa á fjallstindi eftir góða göngu. Finna fjallaloftið fylla lungun, njóta útsýnis, finna fyrir vellíðan og ekki síst njóta þessa alls í góðum félagsskap.
Þannig eru áhrifin af góðri gönguferð margvísleg, bæði á líkama og sál. Mikilvægt er þó að muna eftir því að byrja ávallt hægt og rólega og byggja smám saman upp þrek og styrk.
Vísindarannsóknir staðfesta að hreyfing hefur jákvæð áhrif á heilsu fólks. Þau sem hreyfa sig reglulega minnka meðal líkur á því að fá ýmsa sjúkdóma. Regluleg hreyfing eykur líkurnar á að fólk lifi lengur og við betri lífsgæði en annars. Góð heilsa íbúa er forsenda sjálfbærs velferðarkerfis. Stjórnvöld á Íslandi og þar með talin heilbrigðisyfirvöld hafa mikil ónýtt tækifæri í samstarfi við fjölmörg félagasamtök og grasrótina til að efla hreyfingu landsmanna og stuðla þannig að bættri heilsu landans.

Tækifæri til fjölbreyttrar útivistar og aðgengi að grænum svæðum eru þættir sem hafa áhrif á vellíðan fólks. Á fáum stöðum í heiminum er eins gott aðgengi að náttúrunni og á Íslandi. Víða í nærumhverfinu má finna græn útívistarvistarsvæði. Í Reykjavík má td nefna Heiðmörk, Úlfarsfell, Öskjuhlíð, Elliðaárdal og Esjuna og mikilvægt að standa vörð um þessi svæði og styrkja.
Góð heilsa er eitt það mikilvægasta sem hver einstaklingur á. Því þurfum við að hugsa vel um okkur, hreyfa okkur reglulega, borða hollt og ástunda heilbrigðan lífsstíl. Fjölmörg ferða- og útivistarfélög bjóða upp á gönguhópa og reglubundna hreyfingu og útivist í góðum félagsskap. Nú um áramót er kjörið tækifæri að stíga á stokk og strengja þess heit að hreyfa sig sem mest úti í náttúrunni á nýju ári.

Höfundur er framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands.