Innlent

Hörmungar í Los Angeles og myrkur í Smyrilshlíð

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Erla Björg Gunnarsdóttir ritstjóri fréttastofunnar segir fréttir á Stöð 2 klukkan 18:30.
Erla Björg Gunnarsdóttir ritstjóri fréttastofunnar segir fréttir á Stöð 2 klukkan 18:30. Vísir/Vilhelm

Íslendingur sem flúði gróðureldana í Los Angeles segir heimili sitt og allt hverfið sem hann bjó í brunnið til grunna. Mikil óvissa ríki um framtíðina og honum líði eins og hann sé staddur í bíómynd. Eldarnir eru þeir mestu á svæðinu í manna minnum og eyðileggingin mikil. Erfiðlega hefur tekist að ná stjórn á þeim þó vind sé tekið að lægja.

Við sýnum myndir frá hamförunum í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30, ræðum við Egil Örn Egilsson leikstjóra sem missti heimili sitt og förum yfir atburðinn í stærra samhengi með veðurfræðingi í myndveri.

Skiptar skoðanir eru meðal Grænlendinga um áhuga Donalds Trump verðandi Bandaríkjaforseta á landi þeirra. Grænlenska þjóðin er óvænt lent í miðri hringiðu alþjóðlegrar deilu og vart er til sá þjóðarleiðtogi í vestrænum heimi sem ekki hefur verið spurður út í málið síðustu daga. 

Við verðum í beinni útsendingu frá kynningarfundi vegna fyrstu lotu Borgarlínunnar sem haldinn er í Ráðhúsinu nú síðdegis. Þá sýnum við myndir frá jarðarför Jimmy Carter fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Fimm forsetar voru viðstaddir útförina. 

Íbúi í Smyrilshlíð í Hlíðarendahverfi hefur miklar áhyggjur af fyrirhuguðu fimm hæða húsi nokkrum metrum frá íbúð hennar. Íbúð sem áður var auglýst sem útsýnisíbúð verður án sólarljóss allan ársins hring breyti borgin ekki áformum. 

Þá heimsækjum við eigendur sveitahótels í Ásahreppi, sem hlaut tilkomumikla nafnbót á dögunum, og í Sportinu verður rætt við Arnar Gunnlaugsson að loknu starfsviðtali hjá KSÍ í dag. Vala Matt heimsækir Guðrúnu Bergmann lífsstílsráðgjafa í Íslandi í dag. Guðrún lumar á ýmsum ráðum handa þeim sem vilja taka sig á eftir hátíðarnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×