Úrkomusvæði vaxandi lægðar nálgast óðum Magnús Jochum Pálsson skrifar 11. janúar 2025 09:12 Búast má við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum og því mikilvægt að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón. Vísir/Vilhelm Smálægð milli Íslands og Grænlands beinir hægri suðlægri átt með slydduéljum að landinu. Suður í hafi er vaxandi lægð sem hreyfist norður á bóginn og í nótt er von á allhvassri suðaustanátt með rigningu og hækkandi hita.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands um veðurhorfurnar næstu daga. Þar segir að búast megi við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum og því sé mikilvægt að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón. Gefnar hafa verið út veðurviðvaranir og er fólk því hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám. Lægðin verður svo komin langt norður í Dumbshaf á mánudagsmorgun og fer þá nýtt úrkomusvæði yfir landið og það hlýnar aftur. Skúrir í dag en hlýrra Veðurhorfur á landinu í dag eru þannig að von er á fimm til þrettán metrum á sekúndu suðaustan og sunnan, skúrum eða slydduéljum og tíu til átján metrum á sekúndu norðvestantil. Þá verður samfelld úrkoma um tíma í dag en norðaustanlands verður hægari vindur og bjart með köflum. Hiti allvíða eitt til sjö stig en þó er von á vægu frost austantil fram að hádegi. Seint í kvöld hvessir sunnan- og vestanlands, suðaustan verða í nótt þrettán til tuttugu metrar á sekúndu og rigning. Hægara og þykknar upp norðaustantil í fyrramálið, tíu til fimmtán metrar á sekúndu og rigning seinnipartinn, en lægir þá og rofar til vestanlands. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á mánudag: Suðlæg átt 8-15 m/s og allvíða rigning eða súld, en skúrir eftir hádegi. Styttir upp á norðaustanverðu landinu síðdegis. Hiti víða tvö til átta stig. Á þriðjudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 5-15, hvassast austantil. Rigning með köflum, en samfelldari úrkoma syðst á landinu. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag: Suðlæg eða breytileg átt 13-20 og rigning, en úrkomulítið norðaustanlands. Áfram milt. Kólnar um kvöldið með snjókomu eða éljum um landið vestanvert. Á fimmtudag: Norðlæg átt og snjókoma með köflum, en stöku él vestanlands. Frost víða núll til sjö stig. Á föstudag: Útlit fyrir vaxandi austanátt með snjókomu, en síðar rigningu eða slyddu sunnanlands. Hlýnar smám saman.
Veður Færð á vegum Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Fleiri fréttir Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Sjá meira