Innlent

Varað við ísingu með um­skiptum í veðri

Kjartan Kjartansson skrifar
Blautar götur og gangstéttir gætu orðið ísilagðar þegar kólnar með deginum. Myndin er úr safni.
Blautar götur og gangstéttir gætu orðið ísilagðar þegar kólnar með deginum. Myndin er úr safni. Vísir/Getty

Hætta er á að ísing og hálka myndist á blautum vegum, sérstaklega á Suðvesturlandi og á höfuðborgarsvæðinu, þegar umskipti verða í veðrinu síðdegis og í kvöld. Rigna á fram eftir degi en síðan kólna.

Þetta kemur fram í ábendingu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. Einar Sveinbjörnson, veðurfræðingurinn, bendir á að mun kaldara loft lúri vesturundan landinu.

„Þegar styttir upp nærri hádegi suðvestanlands er hætt við að þymndist glæraísing á yfirborði allvíða og eins fyrir austan fjall,“ skrifar Einar á Facebook-síðu sína.

Aðeins sé spurning um tíma hvenær veghiti fari undir frostmark, síðdegis eða í kvöld.

Stíf sunnanátt og rigning fylgir nú lægð sem er á leið norður yfir landið. Veðurstofan segir að lægðin fjarlægist með deginum og á dragi úr vindi of ofankomu. Kólna eigi smám saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×