Baldoni stefnir Lively sem lætur sér fátt um finnast Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 17. janúar 2025 14:31 Justin Baldoni segir Blake Lively og „drekana“ hennar tvo þau Ryan Reynolds og Taylor Swift hafa beitt sig óeðlilegum þrýstingi. Vísir/Getty Justin Baldoni hefur ákveðið að stefna Blake Lively og eiginmanni hennar Ryan Reynolds meðal annars vegna þess sem hann segir vera kúgun af þeirra hálfu og ófrægingarherferð. Lögmenn leikkonunnar hafa tjáð sig um stefnuna og segja að um sé að ræða annan kafla í „handbók ofbeldismannsins.“
Stefnan hljóðar upp á 400 milljónir Bandaríkjadollara en líkt og áður hefur komið fram hefur Lively þegar lagt fram kvörtun gegn Baldoni í undirbúningi fyrir lögsókn vegna meints kynferðislegs áreitis hans og áróðursherferðar gegn henni. Þau léku saman í kvikmyndinni It ends with us sem Baldoni leikstýrði og hafa allar götur síðan rifist opinberlega eins og hundur og köttur. Baldoni vill með málið alla leið fyrir dómstóla. Gríðarlega athygli vakti í ágúst þegar myndin kom út að þau Baldoni og Lively, létu aldrei sjá sig á sama stað þegar myndin var kynnt og markaðssett. Gömul viðtöl þar sem Lively var óþægileg voru rifjuð upp og spjótin beindust í miklum mæli að henni. Það var svo í síðasta mánuði sem Lively sagði að Baldoni hefði sett af stað umfangsmikla áróðursherferð gegn henni til að rústa orðspori hennar, ef ske kynni að hún myndi gera ásakanir sínar opinberar. Ryan Reynolds og Taylor Swift hafi þrýst á hann Stefna Baldoni er 179 blaðsíður að lengd, að því er fram kemur í umfjöllun People og þar kennir ýmissa grasa. Hann sakar Lively um að hafa reynt af öllum krafti að eignast réttindi að myndinni. Hann segir þau auk þess hafa sett af stað viðamikla herferð í þeim tilgangi að rústa mannorði hans en Baldoni hefur ávallt þvertekið fyrir að hafa kynferðislega áreitt Lively líkt og hún hefur haldið fram. Þá fullyrðir hann að Taylor Swift stórstjarna og vinkona Lively hafi ásamt eiginmanni Lively, leikaranum Ryan Reynolds, þrýst á Baldoni að verða við óskum hennar um að endurskrifa hluta úr handriti myndarinnar. Hann hafi orðið við því. Segir að um sé að ræða mikilvægt atriði þar sem persónur þeirra hafi hitt hvort annað í fyrsta sinn uppi á húsþaki. Baldoni hafi viljað óbreytt atriði, talið það skipta sköpum fyrir myndina. Lively hafi gjörbreytt atriðinu og ekki talað við hann í nokkra daga eftir að hann hafi mótmælt þessu. Baldoni fullyrðir að hann hafi svo verið boðaður á fund með Ryan Reynolds í þakíbúð hans í New York. Þar hafi Taylor Swift verið stödd og talið borist að handritinu þar sem hún hafi hrósað breytingum Lively í hástert. Baldoni segir að þarna hafi verið þrýst á hann að verða við óskum hennar. Atriðið umdeilda má horfa á hér fyrir neðan. Hann hafi sent Lively SMS og sagt henni að hún þyrfti ekki að senda sitt fólk í að þrýst á hann, hann væri til í þetta. Segir Baldoni að Lively hafi þá sagt honum að hún væri líkt og Khaleesi í Game of Thrones og að Taylor Swift og Ryan Reynolds væru drekarnir hennar tveir. Áður hefur komið fram að Lively hafi sagt í viðtali við E á frumsýningu myndarinnar í New York í ágúst að atriðið umdeilda á þakinu hafi í raun verið skrifað af eiginmanni hennar. „Það veit það enginn nema þú núna!“ sagði hún við fréttamann. Sé bara næsti kafli í handbókinni Lögmenn Blake Lively voru fljótir að senda frá sér yfirlýsingu eftir að fréttir bárust af því í gær að Baldoni hefði stefnt leikkonunni. Þeir segja um aldagamla sögu að ræða. „Kona tjáir sig og setur fram skotheld sönnunargögn sem sýna fram á kynferðislega áreitni og hefnd og ofbeldismaðurinn reynir að snúa spjótunum að fórnarlambinu,“ hefur Hollywood Reporter eftir lögmönnum leikkonunnar. Þeir segja fantabrögð Baldoni hægt að kenna við DARVO á ensku (e. Deny. Attack. Reverse Victim Offender) sem á íslensku útleggst sem svo að neita öllu, blása til sóknar og snúa hlutverkum fórnarlambs og brotamanns á hvolf. Fram kemur í umfjöllun miðilsins að lögmenn Baldoni hafi farið fram á að farið verði með málið alla leið fyrir dómstóla. Segir í umfjölluninni að það verði að teljast afar líklegt að svo verði, enda hvorugt líklegt til þess að gefa eftir. Möguleiki sé á að báðar stefnur þeirra á hendur hvort öðru verði teknar fyrir í sömu réttarhöldum. Baldoni hefur einnig stefnt New York Times fyrir umfjöllun sína um meinta hegðun hans á setti myndarinnar og sakað miðilinn um að hafa birt einhliða frásögn Lively af málavöxtum.
Hollywood Tengdar fréttir Justin um #MeToo: „Ég hef verið áreittur af konum í valdastöðum“ Jane the Virgin-stjarnan Justin Baldoni beitir sér fyrir jafnrétti í kvikmyndabransanum. 8. desember 2017 20:30 Blake Lively umdeild forsíðustúlka septemberblaðsins Súperstjarnan og leikkonan Blake Lively prýðir forsíðu septemberblaðs Vogue sem er jafnframt alltaf stærsta útgáfa ársins hjá tímaritinu. Forsíðan minnir á gamaldags Hollywood glamúr og hafa netverjar tjáð skiptar skoðanir á þessu vali. Lively hefur sömuleiðis verið gagnrýnd fyrir markaðssetningu á nýrri kvikmynd sem hún fer með aðalhlutverk í. 13. ágúst 2024 13:30 Eignaðist fjórða barnið og landaði hlutverki í It Ends With Us Leikkonan Blake Lively hefur eignast sitt fjórða barn með eiginmanni sínum til tíu ára, leikaranum Ryan Reynolds. Blake tilkynnti um komu barnsins á Instagram í gær, þó á afar lúmskulegan hátt. 13. febrúar 2023 10:31 Mest lesið Ryan Reynolds og Taylor Swift hafi beitt hann þrýstingi Lífið Illa bruggaðar Guðaveigar Gagnrýni Þetta eru keppendur Söngvakeppninnar 2025 Lífið Erling og Sigríður selja húsið eftir átján ár Lífið Sjá loksins fyrir endann á erfiðustu framkvæmdum á ferlinum Lífið Frumsýning á Vísi: Ferðalag um næturhimininn með Kára Egils Tónlist Taldi læknana vera að grínast þegar hann vaknaði úr dái Lífið Steldu meðgöngustílnum af Tönju Ýr Tíska og hönnun Gucci og glæsileiki á Ítalíu hjá Línu og Gumma Lífið Adam Sandler á sýningu Maríu Birtu í Las Vegas Lífið Fleiri fréttir Þetta eru keppendur Söngvakeppninnar 2025 Erling og Sigríður selja húsið eftir átján ár Ryan Reynolds og Taylor Swift hafi beitt hann þrýstingi Gucci og glæsileiki á Ítalíu hjá Línu og Gumma Taldi læknana vera að grínast þegar hann vaknaði úr dái Sjá loksins fyrir endann á erfiðustu framkvæmdum á ferlinum Joan Plowright er látin Dóttir Ernu Mistar og Þorleifs Arnar fædd Minntust þess að 30 ár eru liðin frá því að flóðið féll Adam Sandler á sýningu Maríu Birtu í Las Vegas Nicola Sturgeon orðin einhleyp Mætti með fertugan Paddington á forsýninguna David Lynch er látinn Flugfélag bregst við vegna kómískrar frásagnar Katrínar Skælbrosandi Sofia snæddi með Lewis Erótískt hommablað vill mynda akureyrska fola Bobbysocks og Wig Wam vilja aftur í Eurovision Sagði engum frá nema fjölskyldunni Fallegt heimili Völu á Álftanesinu Starfsdagar nauðsynlegir, meira ofbeldi og ljótara orðbragð „Þetta er svo ósanngjarnt og enn mjög óraunverulegt fyrir okkur fjölskylduna“ Nóg pláss fyrir tvo í sturtunni Kynferðisleg stífla hjá húsfélaginu Rakel María hætt komin: „Þið verðið drepin ef þið farið þarna upp“ Linda Nolan látin Gert að halda öllum gögnum um „Nicepool“ „Í rauninni fyrsti íslenski samfélagsmiðillinn“ Snýst ekki bara um að vera með flottan rass Segist á batavegi og heimsækir sjúkrahúsið sem hún dvaldi á Makinn hélt framhjá: „Ég get ekki fyrirgefið“ Sjá meira
Justin um #MeToo: „Ég hef verið áreittur af konum í valdastöðum“ Jane the Virgin-stjarnan Justin Baldoni beitir sér fyrir jafnrétti í kvikmyndabransanum. 8. desember 2017 20:30
Blake Lively umdeild forsíðustúlka septemberblaðsins Súperstjarnan og leikkonan Blake Lively prýðir forsíðu septemberblaðs Vogue sem er jafnframt alltaf stærsta útgáfa ársins hjá tímaritinu. Forsíðan minnir á gamaldags Hollywood glamúr og hafa netverjar tjáð skiptar skoðanir á þessu vali. Lively hefur sömuleiðis verið gagnrýnd fyrir markaðssetningu á nýrri kvikmynd sem hún fer með aðalhlutverk í. 13. ágúst 2024 13:30
Eignaðist fjórða barnið og landaði hlutverki í It Ends With Us Leikkonan Blake Lively hefur eignast sitt fjórða barn með eiginmanni sínum til tíu ára, leikaranum Ryan Reynolds. Blake tilkynnti um komu barnsins á Instagram í gær, þó á afar lúmskulegan hátt. 13. febrúar 2023 10:31