Lífið

Hommalegasta blómabúðin opnuð með stæl

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Stórglæsilegu hjónin Bjarmi Fannar og Bjarni Snæbjörnsson opnuðu blómabúðina Hæ blóm með stæl á föstudaginn.
Stórglæsilegu hjónin Bjarmi Fannar og Bjarni Snæbjörnsson opnuðu blómabúðina Hæ blóm með stæl á föstudaginn. Unnur Agnes Níelsdóttir

Það var allt í blóma á opnun blómabúðarinnar Hæ blóm síðastliðinn föstudag. Hjónin Bjarmi Fannar og Bjarni Snæbjörnsson eigendur hafa unnið hörðum höndum við að gera og græja og eru í skýjunum með viðtökurnar.

„Stemningin var blómleg og blússandi. Það var svo magnað að finna fyrir áhuga gesta á Hæ blóm eftir þrotlausa vinnu síðustu vikur og mánuði að koma þessu í gang,“ segir Bjarmi Fannar í samtali við blaðamann.

„Fólk hafði augljósan áhuga á blómunum og fallegum vöndum en ekki síður vandaðri gjafavöru sem við erum að taka inn og selja, eins og kaffi frá Korg og súkkulaði frá Ellu Stínu.“

Mamma Bjarma Fannars henti í kræsingar og nokkrir tónlistarmenn stigu á stokk.

„Það var mikill heiður að fá mergjaðar söng- og leikkonur til að koma fram í opnuninni. Við viljum halda áfram að vera með viðburði í Hæ Blóm af ýmsu tagi og efla þannig menningu í hverfinu, prufa nýja hluti og halda stemningunni gangandi,“ segir Bjarmi Fannar en búðin er staðsett í Grímsbæ.

Á opnuninni komu fram Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Margrét Eir, Urður Bergsdóttir, Þórey Birgisdóttir og Bjarni Snæbjörnsson. Hér má sjá vel valdar myndir frá teitinu:

Bjarni og Vala Kristín í stuði.Unnur Agnes Níelsdóttir
Nína Dögg og Gísli Örn létu sig ekki vanta og keyptu þennan fallega vönd.Unnur Agnes Níelsdóttir
Urður Bergs, Margrét Eir og Þórey Birgisdóttir skemmtu gestum.Unnur Agnes Níelsdóttir
Skvísur skáluðu fyrir Hæ blóm!Unnur Agnes Níelsdóttir
Gleðin var við völd!Unnur Agnes Níelsdóttir
Fjölskylda og nánir vinir Bjarma og Bjarna glöddust með þeim.Unnur Agnes Níelsdóttir
Bjarmi Fannar glæsilegur í gulu!Unnur Agnes Níelsdóttir
Marg var um manninn!Unnur Agnes Níelsdóttir
Sigríður Eyrún Friðriksdóttir tók lagið!Unnur Agnes Níelsdóttir
Margrét Eir brosti sínu breiðasta í góðum félagsskap.Unnur Agnes Níelsdóttir
Fólk í blóma lífsins!Unnur Agnes Níelsdóttir
Það var líf og fjör í opnun Hæ blóm!Unnur Agnes Níelsdóttir
Góð stemning!Unnur Agnes Níelsdóttir
Bjarmi með glæsilegan blómvönd!Unnur Agnes Níelsdóttir
Bjarmi Fannar og Bjarni í skýjunum með opnunina!Unnur Agnes Níelsdóttir
Skál í boðinu!Unnur Agnes Níelsdóttir
Kaffi og blóm!Unnur Agnes Níelsdóttir
Þórey Birgis í góðum félagsskap.Unnur Agnes Níelsdóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.