Íslenski boltinn

Ó­sáttur afi Sölva skildi ekki hvernig Arnar gat rekið hann í beinni

Aron Guðmundsson skrifar
Sölvi Geir Ottesen er nýr þjálfari Víkings Reykjavíkur. Eftir farsælt samstarf sem aðstoðarþjálfari liðsins undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar sem nú er tekinn við íslenska landsliðinu.
Sölvi Geir Ottesen er nýr þjálfari Víkings Reykjavíkur. Eftir farsælt samstarf sem aðstoðarþjálfari liðsins undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar sem nú er tekinn við íslenska landsliðinu. Vísir/Samsett mynd

Sölvi Geir Otte­sen er nýr þjálfari karla­liðs Víkings Reykja­víkur í fót­bolta og fær hann það verðuga verk­efni að taka við stjórn liðsins af hinum sigursæla Arnari Gunn­laugs­syni sem er tekinn við íslenska landsliðinu. Arnar rak Sölva, í góðu, úr landsliðsteyminu en ekki kveiktu allir á því að allt var þetta gert í góðu og sátt allra hlutaðeigandi.

Sölvi hefur reynslu af því að stýra leikjum hjá Víkingi í leik­bönnum Arnars frá síðustu leiktíð í starfi sínu sem að­stoðarþjálfari en núna stendur hann einn í stafni og þarf að takast á við risastóra áskorun, að viðhalda þeim góða árangri sem náðst hefur í Víkinni.

„Ég er virki­lega stoltur af þessu og þakk­látur fyrir traustið sem stjórn Víkings sem og aðrir sem koma að þessu hafa sýnt mér,“ segir Sölvi Geir en ráðning hans hefur verið eytt verst geymda leyndar­mál ís­lenskrar knatt­spyrnu undan­farnar vikur. 

„Það er mikil til­hlökkun í mér fyrir því að vinna með strákunum. Ég er mjög sáttur og stoltur af þessu.“

Byrjað að ræða þetta í fyrra

Að­dragandinn að því að hann fær starfið er hins vegar lengri en mönnum kannski grunaði því strax á síðasta ári var byrjað að ræða þann mögu­leika að hann myndi taka við þjálfun Víkings Reykja­víkur við brott­hvarf Arnars.

„Þetta hefur verið tölu­vert langur að­dragandi. Í fyrra, eins og við vitum flest, var Arnar í viðræðum við Norrköping um að fara út. Þá voru þannig séð viðræður við mig hafnar varðandi það að taka við liðinu. Ég var búinn að setja mig í start­holurnar þegar að hann var að ræða við þá.“

„Þetta er búinn að vera langur að­dragandi en núna þegar að lands­liðið kom upp á borð núna hafði maður það á til­finningunni að þeir væru að fara velja hann. Ég er bara mjög sáttur með að hann sé kominn í lands­liðið, þar af leiðandi fékk ég starfið hjá Víkingi. Og þá er ég sáttur fyrir Ís­lands hönd því hann er frábær þjálfari og ég veit líka að teymið sem hann er að vinna með í lands­liðinu er skipað frábærum þjálfurum. Ég vona bara svo inni­lega að þeir nái vel saman og geri góða hluti fyrir Ís­land.“

Frá blaðamannafundi gærdagsins þar sem greint var frá ráðningu Sölva Geirs til næstu þriggja áraVísir/EINAR

„Afi hringdi alls ekki sáttur“

Sam­hliða því að starfa sem að­stoðarþjálfari Víkings Reykja­víkur á síðasta ári var Sölvi Geir hluti af þjálfara­t­eymi ís­lenska lands­liðsins undir stjórn Age Hareide. Nú þegar að Arnar er tekinn við bjuggust kannski margir við því að Skagamaðurinn myndi halda Sölva í teyminu en svo er nú al­deilis ekki.

Segja má að Arnar hafi rekið Sölva úr teyminu í beinni út­sendingu á Stöð 2 Vísi á dögunum á blaða­manna­fundi þegar að hann var kynntur sem nýr lands­liðsþjálfari. Sölvi Geir tók vel í þetta út­spil Arnars á fundinum en afi hans var ekki alveg með á hreinu að um góðan húmor þeirra á milli væri að ræða þó vissu­lega verði Sölvi ekki áfram í teymi lands­liðsins.

„Það var góður ban­ter hjá honum. Ég hafði mjög gaman af því. Afi minn hringdi í mig alls ekki sáttur með þetta. Ég held hann hafi ekki lesið fréttina alveg í gegn. Hann skildi ekkert í því hvernig hann gat rekið mig í beinni út­sendingu. Þetta var bara skemmti­legur ban­ter. Ég tók vel í þetta.“

Smávægilegar breytingar í farvatninu

Fyrsta starf Sölva sem aðalþjálfari hjá einu sigursælasta liði Ís­lands undan­farin ár.

„Þetta gerist ekki stærra en akkúrat þetta starf. En ég tek því bara fagnandi. Nú er ég, eins og kannski flestir vita, að stíga mín fyrstu skref sem aðalþjálfari. Ég get því ekki tekið því ró­lega og komið mér ró­lega af stað. Ég hoppa út í djúpu laugina og verð að gjöra svo vel að standa mig. Ég held líka að það ýti mér upp á næsta stig mun fljótar. Að þurfa að takast á við svo stórt verk­efni. Þá kannski tek ég fram­förum í starfi mun hraðar í kjölfarið. Síðan að ég tók við þessu er hausinn ekki búinn að stoppa. Það hafa margar hug­myndir fengið að fljúga.

Sölvi Geir Ottesen stýrði Víkingum í fjarveru Arnars Gunnlaugssonar sem var í leikbanni.Vísir/Anton Brink

En er hann að fara breyta miklu út frá vananum frá því hvernig Arnar setti upp hlutina?

„Það eru ákveðin áherslu­at­riði. Hvernig ég sé fót­boltann þegar kemur að varnar- eða sóknar­leik. Þetta eru ekki miklar breytingar sem munu eiga sér stað, alla­vegana ekki til að byrja með. Við erum í raun og veru enn í keppni sem er áfram­hald af keppni sem við hófum leik í á síðasta ári. Til að byrja með verða ekki það miklar drastískar breytingar á þessu. En vissu­lega koma inn lítil smá­at­riði hér og þar, aðeins öðru­vísi áherslur á fasa innan leiksins. Við munum bara halda áfram að spila eins og við höfum verið að gera.“

Frá blaðamannafundi gærdagsins þar sem greint var frá ráðningu Sölva Geirs til næstu þriggja áraVísir/EINAR

Markmiðið að sækja báða titla

Þjálfarar liða í efstu deild hér á landi þurfa að vera með KSÍ A þjálfara­gráðuna. Enn sem komið er býr Sölvi að UEFA B þjálfara­gráðunni en innan tíðar verður A-gráðan komin í hús.

„Ég kláraði hluta af henni í Dan­mörku og loka­verk­efnið í þeirri gráðu tek ég núna í febrúar. Ég ætti því að klára A gráðuna þá.“

Víkingar eru komnir langt í Evrópu, eiga fyrir höndum ein­vígi gegn Pan­at­hinai­kos í Sam­bands­deildinni en hér heima á síðasta tíma­bili, sem ríkjandi meistarar, lutu þeir í lægra haldi fyrir Breiða­bliki í deildinni og KA í úr­slita­leik Bikarsins. Stefnan er að kvitta fyrir það á komandi tíma­bili.

„Það er klár­lega okkar mark­mið og við erum ekkert feimnir við að segja það. Þú vilt alltaf gera betur heldur en á síðasta tíma­bili og það þýðir bara eitt. Við viljum vinna Ís­lands­meistara- og bikar­meistara­titilinn. Það eru klár­lega okkar mark­mið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×