Erlent

Írar undir­búa sig fyrir mesta ó­veður í manna minnum

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Írar eru beðnir um að halda sig heima á morgun.
Írar eru beðnir um að halda sig heima á morgun. GETTY/Andrew Milligan

Írar undirbúa komu stormsins Éowyn sem nálgast strendur landsins. Búist er við að stormurinn muni hafa alvarlegar afleiðingar en rauð veðurviðvörun verður í gildi á öllu landinu.

Spáð hefur verið hvössum vindi og hviðum allt að 130 kílómetrum á klukkustund, sem eru rúmlega 36 metrar á sekúndu.

„Þetta verður eyðileggjandi, hættulegur og skaðlegur stormur,“ segir Keith Leonard, formaður samhæfingahóps neyðartilvika á landsvísu á Írlandi í umfjöllun fjölmiðilsins Guardian.

Vindurinn gæti haft virkilega alvarlegar afleiðingar og jafnvel sett líf almennings í hættu. Viðbragðsaðilar fylgist grannt með stöðunni.

Leonord sagði einnig að fleiri myndu finna fyrir rafmagnsleysi heldur en í storminum Ophelia sem reið yfir landið árið 2017 en 385 þúsund manns voru án rafmagns eftir óveðrið.

Almenningur hefur verið beðinn um að halda sig heima og vera viðbúinn rafmagnsleysinu. Þá eigi almenningur einnig að halda sig frá sjávarströndinni þar sem búast má við stórum öldum.

Í umfjöllun írska miðilsins The Irish Times kemur fram að írska veðurstofan, Met Éireann, hefur gefið út rauða veðurviðvörun fyrir allt landið. Þær fyrstu taka gildi klukkan tvö í nótt, aðfaranótt föstudags.

Einnig kemur þar fram að skólar á öllum stigum verða lokaðir og almenningssamgöngur skertar. Engar lestar né strætisvagnar muni ganga. Þá er búist við að fresta þurfi flugferðum í öllu landinu.

„Þetta er einn af hættulegustu stormum sem að Írar munu hafa staðið frammi fyrir. Við munum sjá gríðarlegan fjölda trjáa falla á morgun og margt fólk verður án rafmagns,“ segir Leonard í samtali við The Irish Times.

Mesta óveður í Írlandi hingað til, samkvæmt Guardian, var í september árið 1961 þegar fellibylurinn Debbie reið yfir landið. Átján manns létust í Írlandi vegna bylsins og sex í Norður-Írlandi.

Að sögn Einar Sveinbjarnarsonar, veðurfræðings, gætu eldingar sem slógu niður hérlendis tengst óveðrinu „með óbeinum hætti.“ Ísland ætti hins vegar að sleppa við alla vinda frá Éowyn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×