Innlent

Bein útsending: Er aukin kjöt- og próteinneysla leiðin að bættri heilsu?

Árni Sæberg skrifar
Jóhanna Eyrún Torfadóttir og Thor Aspelund hafa umsjón og ritstjórn með fundinum.
Jóhanna Eyrún Torfadóttir og Thor Aspelund hafa umsjón og ritstjórn með fundinum. Vísir

Heilsan okkar er ný fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar sem varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Á fyrsta fundinum verður reynt að svara spurningunni: „Er aukin kjöt- og próteinneysla leið að bættri heilsu?“ Sýnt verður frá fundinum, sem hefst klukkan 11:30, hér á Vísi.

Í umfjöllun um fundinn á vef Háskóla Íslands segir að vísbendingar séu um að ákveðnir hópar í samfélaginu neyti í auknu mæli fæðutegunda sem innihalda mikið prótein, til dæmis kjötmetis, á kostnað grænmetis, ávaxta og trefja/kornmetis, sem sé ekki í samræmi við næringarviðmið embættis landlæknis. 

Fjallað verði um mögulegar ástæður sem liggja að baki breyttra fæðuvenja hér á landi og hvað rannsóknir segja um ágæti „próteinbyltingarinnar“ hvað varðar heilsufar til lengri tíma.

Umsjón og ritstjórn með þessum fyrsta fundi í fundaröðinni hafa Jóhanna Eyrún Torfadóttir og Thor Aspelund. Fundinn má sjá í spilaranum hér að neðan:

Dagskrá fundarins: 

  • Fundarstjóri: Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis
  • Jóhanna Eyrún Torfadóttir, lektor í lýðheilsuvísindum – Er þróun mataræðis Íslandi á skjön við alþjóðlegar næringarráðleggingar?
  • Steina Gunnarsdóttir, doktorsnemi í heilbrigðisvísindum – Hver eru áhrif gjörunninna kjötvara á heilsu og kolefnisfótspor Íslendinga?
  • Kristján Þór Gunnarsson, læknir - Þurfa skjólstæðingar heilbrigðiskerfisins einstaklingsmiðaða mataræðisráðgjöf?
  • Ólafur Skúli Indriðason, sérfræðingur í nýrnalækningum – Hvaða áhrif hefur próteinneysla á einstaklinga með skerta nýrnastarfsemi?
  • Geir Gunnar Markússon – næringarráðleggingar fyrir lífstíð, mataræði án öfga
  • Thor Aspelund – Hvaða áhrif hafa öfgar í neyslu kjöts og annarrar próteinríkrar fæðu á heilsufar?



Fleiri fréttir

Sjá meira


×