Lífið

Dagur Sigurðs­son á lausu á ný

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Það er óhætt að fullyrða að Dagur er alvöru fengur. Hér er hann á hliðarlínunni með Króötum.
Það er óhætt að fullyrða að Dagur er alvöru fengur. Hér er hann á hliðarlínunni með Króötum. Vísir/Getty

Dagur Sigurðsson, handboltagoðsögn og þjálfari króatíska karlalandsliðsins í handbolta, og Ingunn Sigurpálsdóttir markaðsfulltrúi Bpro eru hætt saman eftir tveggja ára samband.

Dagur er án efa einn reyndasti og farsælasti handboltamaður landsins. Eftir að hafa óvænt leitt Þjóðverja til sigurs á EM 2016 gerði hann sjö ára samning við japanska landsliðið sem hann þjálfaði þar til í febrúar í fyrra.

Dagur tók við Króötum fyrir Ólympíuleikana síðasta sumar og náði sögulegum árangri fyrr í vikunni þegar hann varð fyrsti íslenski handaboltaþjálfarinn til að koma karlalandsliði í undanúrslitaleik á heimsmeistaramóti. Hann hefur í nógu að snúast í dag þegar Króatar mæta Frökkum. 

Dagur, sem stundum er kallaður Daddi, er fæddur árið 1973 var áður giftur Ingibjörgu Pálmadóttur og eiga þau saman þrjú börn.

Ingunn er fædd árið 1985 og vakti mikla athygli þegar hún hreppti annað sætið í Ungfrú Ísland árið 2005, árið sem Unnur Birna Vilhjálmsdóttir vann. Hún var áður í sambandi með Garpi I. Elísabetarsyni og eiga þau saman tvær dætur.


Tengdar fréttir

Dagur Sig og Ingunn Sigur­páls nýtt par

Handboltagoðsögnin Dagur Sigurðsson er kominn á fast samkvæmt heimildum Vísis. Sú heppna heitir Ingunn Sigurpálsdóttir og er markaðsfulltrúi Bpro.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.