Sport

Willum sagður ætla að bjóða sig fram til for­manns ÍSÍ

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Willum Þór Þórsson á leik á Víkingsvelli.
Willum Þór Þórsson á leik á Víkingsvelli. vísir/bára

Fyrrverandi heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, ætlar að bjóða sig fram til formanns Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, á næsta ársþingi þess.

RÚV greinir frá því að Willum undirbúi framboð til formanns ÍSÍ. Lárus Blöndal hefur verið formaður ÍSÍ síðan 2013 en ekki liggur fyrir hvort hann sækist eftir endurkjöri.

Willum var heilbrigðisráðherra fyrir Framsóknarflokkinn 2021-24. Hann datt út af þingi í síðustu kosningum.

Willum, sem er 61 árs, er með sterk tengsl við íþróttahreyfinguna. Hann spilaði sjálfur fótbolta og handbolta og sneri sér svo að þjálfun.

Hann þjálfaði karlalið Þróttar, KR, Vals, Keflavíkur og Leiknis R. auk þess sem hann stýrði íslenska landsliðinu í futsal. Willum gerði KR að Íslandsmeisturum 2002 og 2003 og Val að Íslandsmeisturum 2007 og bikarmeisturum 2005.

Elstu synir Willums, þeir Willum Þór og Brynjólfur Andersen, spila sem atvinnumenn í fótbolta, með Birmingham City og Groningen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×