Innlent

Lýsa yfir hættustigi vegna væntan­legs eld­goss

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá síðasta eldgosi á Reykjanesi.
Frá síðasta eldgosi á Reykjanesi. Vísir/Vilhelm

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir hættustigi vegna vaxandi líkna á eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesi. Síðasta eldgosi lauk þar þann 9. desember en það var sjöunda eldgosið á svæðinu og síðan þá hefur kvika safnast saman aftur undir Svartsengi.

Veðrustofan telur að það magn kviku sem hafi safnast saman undir Svartsengi nálgist það magn sem var þegar síðasta eldgos hófst.

Talið er að eldgos gæti hafist hvenær sem er og mögulega án mikils fyrirvara.

Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að jarðskjálftavirkni á gígaröðinni hafi aukist hægt frá síðasta eldgosi en sé enn lítil. Þróunin hafi þó sýnt að jarðskjálftavirkni fyrir kvikuhlaup hafi farið minnkandi með hverju eldgosi.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur varað fólk við því að vera á ferðinni í Grindavík, sé það ekki nauðsynlegt. Hver og einn verði að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi og það sama gildi um ferðamenn.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×