Körfubolti

Martin með tvö­falda tvennu í sigri Alba

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Martin í leik kvöldsins.
Martin í leik kvöldsins. Srdjan Stevanovic/Getty Images

Martin Hermansson skoraði 11 stig og gaf jafn margar stoðsendingar í sjaldséðum sigri Alba Berlín í Evrópudeildinni í körfubolta.

Landsliðsmaðurinn átti góðan leik þegar Alba lagði Maccabi Tel Aviv frá Ísrael með sex stiga mun, lokatölur 87-93. Leikið var í Belgrade í Serbíu.

Martin var stoðsendingahæstur í sínu liði en Yanni Wetzell var stigahæstur með 22 stig. Alba hefur ekki átt góðu gengi að fagna í Evrópudeildinni á leiktíðinni. 

Sigur kvöldsins var aðeins sá fjórði í 24 leikjum. Sitja Martin og félagar í botnsæti deildarinnar og Tel Aviv er í sætinu fyrir ofan eftir að hafa unnið sex leiki til þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×