Handbolti

Magnaðar mót­tökur fyrir utan höllina kveiktu í strákunum hans Dags

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dagur Sigurðsson fagnar einu marka króatíska liðsins sem byrjaði leikinn 18-9.
Dagur Sigurðsson fagnar einu marka króatíska liðsins sem byrjaði leikinn 18-9. Getty/Slavko Midzor/

Dagur Sigurðsson kom króatíska landsliðinu í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í handbolta í gærkvöldi eftir að liðið vann sigur á Frökkum í undanúrslitaleiknum.

Það var einkum frábær fyrri hálfleikur Króata sem lagði grunninn að sigri þeirra.

Króatíska liðið komst nefnilega í 15-7 eftir 22 mínútur og leiddi um tíma með níu mörkum (18-9). Frakkar skoruðu tvö síðustu mörk fyrri hálfleiks og fjögur af fyrstu fimm mörkum seinni en Króatar héldu út og unnu góðan sigur.

Króatíska liðið var að spila á heimavelli en leikurinn fór fram í Zagreb þar sem liðið hefur spilað allt mótið.

Það er ekki hægt að sjá annað en að móttökurnar sem Dagur og strákarnir fengu þegar þeir mættu í höllina hafi kveikt í liðinu.

Hér fyrir neðan má sjá hvernig stemmningin var á svæðinu þegar rúta króatíska liðsins renndi í garð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×