Fótbolti

Aldrei borgað meira fyrir fótboltakonur en á síðasta ári

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hlín Eiríksdóttir með Leicester City treyjuna en hún mun númer fjórtán í ensku úrvalsdeildinni.
Hlín Eiríksdóttir með Leicester City treyjuna en hún mun númer fjórtán í ensku úrvalsdeildinni. @lcfcwomen

Leiester City keypti íslensku landsliðskonuna Hlín Eiríksdóttur í gær og það er alltaf að aukast peningaflæðið í kvennafótboltanum.

Kvennafótboltaflið heimsins settu nýtt met á síðasta ári og þetta met segir mikið um þróun mála í kvennafótboltanum í dag.

Félögin eyddu alls 15,6 milljónum dollara í leikmenn sem fóru á milli landa en þetta kemur fram í skýrslu frá Alþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA. Þetta eru meira en tveir milljarðar í íslenskum krónum.

Eins er þetta líka tvöfalt meira en var eytt í fótboltakonur árið á undan og það er enn eitt risastökkið á síðustu árum. ESPN segir frá.

Alls fengu 695 kvennalið félagsskipti fyrir 2284 leikmenn á árinu 2024 en peningar fóru á milli félaga í 124 af þessum félagsskiptum.

Þetta er 20,8 prósent aukning frá árinu á undan.

Ein ótrúlegast tölfræðin er þó sú að þetta er sjötta árið í röð þar sem félagsskiptamarkaðurinn í kvennafótboltanum stækkar meira en tuttugu prósent milli ára.

Mest var borgað fyrir Racheal Kundananji sem fór á milli frá Real Madrid á Spáni til Bay FC í Bandaríkjunum. Bay FC borgaði 786 þúsund dollara fyrir hana eða 110 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×