„Höfðum engu að tapa um leið og þær komast í 1-0“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 12. september 2026 19:32 Unnur Dóra Bergsdóttir var hetja Þróttara. Vísir/Hulda Margrét Unnur Dóra Bergsdóttir reyndist hetja Þróttar er hún tryggði liðinu sinn fyrsta bikarmeistaratitil í sögunni.
Unnur Dóra skoraði markið sem skildi liðin að er Þróttur vann 2-1 sigur gegn Grindavík/Njarðví í úrslitum Mjólkurbikarsins í dag. „Tilfinningin er bara geggjuð. Ég veit ekki alveg hvernig maður á að setja það í orð núna,“ sagði Unnur Dóra í leikslok. „Ég er svo stolt af þessu liði. Það er svo gaman með þeim og mér finnst þetta alveg geggjað.“ Eftir öfluga byrjun áttu Þróttarar í erfiðleikum með að brjóta vörn Njarðvíkur/Grindavíkur á bak aftur. Það var ekki fyrr en að liðið lenti undir að Þróttur fann kraftinn til að koma sér á blað og snúa dæminu við. „Við höfðum náttúrulega bara engu að tapa um leið og þær komast í 1-0. Við þurftum bara að sækja og við sóttum og náðum að vinna þetta.“ Ásamt því að skora markið sem skildi liðin að þá var það Unnur Dóra sem hóf sóknina sem skilaði markinu. Hún kom boltanum út á kant þar sem Björg Gunnlaugsdóttir tók við honum og kom honum svo aftur inn á teig. „Ég ætlaði að skjóta til að byrja með. Svo sá ég Björgu þarna úti, galopna, og hélt svo bara hlaupinu áfram. Svo hugsaði ég að það eina sem ég þyrfti að gera væri að leggja hann og ég gerði það. Bara ekki skjóta yfir eða framhjá. Bara leggja hann og ekki of fast.“ Þá virtust Unnur Dóra og liðsfélagar hennar hafa ákveðna hugmynd um það hvernig titlinum yrði fagnað í kvöld, þó hún hafi ekki beint viljað gefa of mikið upp. „Við fögnum þessu mjög vel. Bara mjög vel,“ sagði Unnur Dóra létt að lokum.
Íslenski boltinn Mjólkurbikar kvenna Þróttur Reykjavík UMF Grindavík UMF Njarðvík Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Fleiri fréttir Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Sjá meira