Líkfundur í ánni þar sem síðast sást til tvíburasystra Jón Þór Stefánsson skrifar 31. janúar 2025 10:40 Ekkert hefur spurst til Elizu og Henriettu Huzti síðan aðfaranótt. 7. janúar síðastliðins. Lögrglan í Skotlandi Lögreglan í Skotlandi hefur staðfest líkfund í ánni Dee í Aberdeen í Skotlandi, skammt frá þeim stað þar sem síðast sást til tvíburasystra sem hurfu sporlaust 7. janúar síðastliðinn. Enn á eftir að bera kennsl á líkið.
Systurnar Eliza og Henrietta Huzti eru 32 ára gamlar og upprunalega frá Ungverjalandi, en þær fluttu til Skotlands fyrir nokkrum árum. Þær eru í raun þríburasystur, en þær eiga líka bróður sem er þriðji þríburinn. Síðast er vitað til ferða systranna um miðja nótt í miklum kulda þann 7. janúar, en þá sást til þeirra í myndefni úr öryggismyndavélum í miðbæ Aberdeen. Ekki er vitað hvers vegna þær voru á ferð. Þær sáust skammt frá ánni Dee, sem á ármynni í Aberdeen, en talið er að hún hafi verið ísilögð í kuldanum. Málið var áberandi í fjölmiðlum í Bretlandi, en umfangsmikil leit bar engan árangur. Lögreglan gaf út að ekki væri grunur um að neitt saknæmt hefði átt sér stað. En í dag var greint frá því að lík hefði fundist í vatninu. Eins og áður segir á eftir að bera kennsl á líkið.
Skotland Bretland Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Fleiri fréttir Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Sjá meira