Fara í steininn ef þeir punga ekki út tveimur milljörðum innan mánaðar Jón Þór Stefánsson skrifar 3. febrúar 2025 20:39 Sverrir Þór er einn eigenda Drekans við Njálsgötu. Sverrir Þór Gunnarsson og Snorri Guðmundsson, sem voru í dag sakfelldir fyrir stórfelld tollalagabrot, þurfa hvor um sig að greiða 1,1 milljarð króna í sekt til ríkissjóðs. Ef þessi sekt verður ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins skulu þeir sæta fangelsi í 360 daga.
Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjaness í málinu sem hefur verið birtur á vef dómstólsins. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að tvímenningarnir hefðu gerst sekir um að komast undan greiðslu tóbaksgjalda sem hljóðuðu upp á tæplega 741 milljón krónur. Mjög margar milljónir og ansi mörg úr Annars vegar þarf Sverrir Þór, eigandi söluturnsins Drekans, þarf að sæta upptöku á tveimur fasteignum, einbýlishúsi í Urriðaholti í Garðabæ og atvinnuhúsnæði við Miklubraut í Reykjavík og um það bil 55 milljónum króna. Fram kom í ákæru að af þessum 55 milljónum væru fjörutíu á reikningi sem lögmannsstofa lagði inn á reikning Héraðssaksóknara gegn afhendingu sautján Rolex-úra. Hins vegar er Snorra, rafrettukóngi, gert að sæta upptöku á helmingseignarhlut sínum í þremur eignum. Það er lóð í Bláskógabyggð húsnæði veitingastaðar í Stykkishólmi og einbýlishús í Garðabæ. Einnig er honum gert að sæta upptöku á um 133 milljónum króna, en þar á meðal eru tólf milljónir króna sem sambýliskona Snorra millifærði inn á reikning Héraðssaksóknara gegn afhendingu á sjö úra sem haldlögð voru af héraðssaksóknara við húsleit á heimili þeirra í Garðabæ. Upphaflega var þriðji maðurinn ákærður í málinu. Sá var starfsmaður flutningafyrirtækisins Thor shipping ehf. Hans þáttur var klofinn frá, en hann var lykilvitni saksóknara í málinu. Hann hlaut sex mánaða skilorðsbundinn dóm í nóvember fyrir sinn þátt. Mennirnir voru ákærðir vegna níu tilfella á árunum 2015 til 2018 þar sem þeir veittu íslenskum tollyfirvöldum rangar og villandi upplýsingar við innflutning félags þeirra, Áfengi og tóbak ehf. á reyktóbaki og vindlingum með því að koma því til leiðar að starfsmaðurinn hjá Thor Shipping, sem sinnti tollskjalagerð félagsins, tilgreindi rangar vörutegundir fyrir tollafgreiðslu. Starfsmaðurinn mun hafa tilgreint vörurnar annars vegar sem prótein og hins vegar sem pappírsvörur, en ekki sem tóbak. Því komust þeir hjá því að greiða tæplega 741 milljón krónur. Báðust undan því að ræða málið fyrir dómi Snorri og Sverrir Þór gáfu báðir skýrslu hjá lögreglu, en báðust undan því við aðalmeðferð málsins í héraðsdómi. Í dómi héraðsdóms segir að þeir hafi hvorki getað svarað því játandi né neitandi hvort innihald umræddra sendinga væri tóbak í umrædd skipti. Þeir hafi þó báðir talað um að haf flutt inn talsvert magn tóbaks og annars tóbaksvarnings. Þá hafi þeir báðir sagst aldrei hafa flutt inn prótein. Kannaðist ekki við samskipti við þriðja manninn Snorri mun síðan ekki hafa kannast við að hafa átt í samskiptum við þriðja manninn, starfsmann Thor Shipping. Á meðal gagna málsins var mikið magn tölvupósta, en í þeim mátti finna símtalaskrá þar sem sjá mátti að starfsmaðurinn hefði verið í samskiptum við þá báða. Þar af leiðandi þótti dómnum þessi framburður Snorra ótrúverðugur. Skýr og einbeittur brotavilji Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að þegar öll gögn málsins væru metin heildstætt að mennirnir hefðu gerst sekir um það sem þeir voru ákærðir fyrir. Snorri er fæddur 1983 og Sverrir Þór tveimur árum seinna. Þeir hafa ekki sætt refsingu áður og við ákvörðun refsingar var litið til þess. Þó segir í dómnum að brotin hafi varðað verulegar fjárhæðir, verið ítrekuð og staðið samfellt yfir í nokkurn tíma. Jafnframt var það mat dómsins að mennirnir hefðu sýntaf sér skýran og einbeittan brotavilja.
Dómsmál Skattar og tollar Rafrettur Efnahagsbrot Tóbak Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira