Vefur um útivist í loftið Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 7. febrúar 2025 14:15 Inga Hlín Pálsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins og Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH. Nýr upplýsingavefur um útivistarmöguleika á höfuðborgarsvæðinu er kominn í loftið. Hann ber heitið utumallt.is og var formlega tekinn í notkun á fundi stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) síðastliðinn mánudag.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar kemur fram að á vefnum megi finna yfirlit og upplýsingar um þrjátíu skemmtileg útivistarsvæði og fjörutíu kortlagðar göngu- og hjólaleiðir vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið. Skoða má vefinn með því að klikka á hlekkinn hér fyrir neðan. Leiðum fylgja gagnlegar upplýsingar, til að mynda um erfiðleikastig og tímalengd, og getur notandi jafnframt séð eigin staðsetningu á korti og fylgt leið í rauntíma. Á síðunni er að sögn aðstandenda góð leitarvél og hægt er að sía eftir ýmsum breytum á borð við sveitarfélag, aðstöðu, þjónustu og aðgengi. Vefurinn, sem er bæði á íslensku og ensku, er samstarfsverkefni SSH og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins. Á vefnum má finna allskonar upplýsingar um útivistarsvæði.Skjáskot Vona að vefurinn stuðli að hreyfingu „Eitt af leiðarljósum sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins er að stuðla að heilnæmu umhverfi og heilbrigðu lífi. Í því ljósi ákváðum við að þróa og setja upp vandaðan útivistarvef sem gefur yfirsýn yfir þá fjölbreyttu útivistarmöguleika sem höfuðborgarsvæðið býður upp á. Þeir verða þannig bæði sýnilegri og aðgengilegri fyrir íbúa. Við vonumst innilega til að vefurinn stuðli að aukinni hreyfingu, ánægju og nýtingu á grænum svæðum,“ segir Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH í tilkynningu. Páll Björgvin bendir á að Út um allt tengist fleiri verkefnum sem stuðla að markmiðum sóknaráætlunarinnar, til að mynda Kortlagningu útivistarsvæða á höfuðborgarsvæðinu sem lauk árið 2023. Vefurinn er einnig tengdur samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og þeirri umfangsmiklu uppbyggingu hjóla- og göngustíga sem þar er kveðið á en síðan er hönnuð til að nýta hjóla- og göngustíganet höfuðborgarsvæðisins til framtíðar. Seltjarnarneshringurinn er meðal gönguleiða sem hægt er að nálgast kort af og frekari upplýsingar um á vefnum. Reiðhjólabændur tóku þátt í að kortleggja slóða „Þetta hefur verið einstaklega skemmtilegt verkefni í þróun og hafa m.a. sjálfboðaliðar tekið þátt í kortlagningu slóða. Má sérstaklega nefna hjólreiðasamtökin Reiðhjólabændur sem merktu og skráðu fyrir okkur hjólaleiðir og flokkuðu eftir erfiðleikastigi, og færum við þeim bestu þakkir,“ segir Páll Björgvin. Út um allt hefur verið tæp tvö ár í undirbúningi. Ráðist var í djúpa þarfagreiningu og var samráð haft við íbúa, sveitarfélögin, ferðaþjónustuna og aðra hagaðila á höfuðborgarsvæðinu, enda mikilvægt að vefurinn sé sniðinn að þörfum notenda. Vefurinn byggir á miðlægu skráningarkerfi og gagnagrunni Ferðamálastofu sem heldur utan um gönguleiðir og útivistarsvæði um land allt. Fyrirtækið Sjá - óháð ráðgjöf sá um undirbúning og þarfagreiningu en fyrirtækið Um að gera sá um hönnun og smíði. „Við munum nú halda áfram að þróa Út um allt og bæta við leiðum og skemmtilegum svæðum. Við hvetjum alla til þess að nýta sér vefinn og fara út og njóta náttúrunnar sem umvefur höfuðborgarsvæðið,“ segir Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.
Heilsa Reykjavík Mest lesið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Lífið Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Lífið Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið Halla á hátíðarsýningu Attenborough Lífið Fleiri fréttir Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Bók skilað eftir 56 ára útlán Hugmyndir fyrir mæðradaginn Bakaríið í beinni útsendingu Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Leikstjórinn James Foley er látinn Sjá meira