Hinn grunaði hafi verið svakalega duglegur og greindur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. febrúar 2025 11:42 Upptökur úr eftirlitsmyndavélum sýndu Alfreð Erling á vappi við bensínstöð Olís í Neskaupstað skömmu áður en hann er talinn hafa farið á heimili hjónanna. Vísir/Vilhelm Verslunareigandi í Neskaupstað segir Alfreð Erling Þórðarson sem ákærður er fyrir að ráða hjónum í bænum bana hafa verið svakalega duglegan, greindan og færan í höndunum. Undanfarin ár hafi greinilega farið að halla á ógæfuhliðina sem sjá mátti á arki hans um bæinn.
Alfreð Erling, 46 ára Norðfirðingur, er ákærður fyrir að verða hjónum á áttræðisaldri sem hann þekkti til að bana á heimili þeirra í Neskaupstað. Talið er að hann hafi verið í geðrofi, notað hamar og slegið fólkið endurtekið í höfuðið með verkfærinu með fyrrnefndum afleiðingum. Verslunareigandi í bænum gaf skýrslu fyrir dómi í dag. Hann sagði Alfreð hafa vanið komur sínar um tíma í verslun hans, þeir spjallað mikið og Alfreð keypt mikið af vörum. Sérstaklega striga og fleira til að mála. Eigandinn sagði að ásökun um nauðgun hefði legið þungt á Alfreði árið 2021. Alfreð teldi son hjónanna sekan um brotið. Alfreð hefði verið mjög reiður út í soninn, þeir hefðu verið miklir vinir og hann notið aðstoðar hans varðandi hús sem Alfreð átti í bænum. Þá væri hann reiður út í hina látnu sem hefði veitt syni sínum fjarvistarsönnun, að því er vitnið hafði eftir úr samtali sínu við Alfreð Erling. Þetta hafi þó verið fyrir nokkrum árum, í kringum 2020 eða 2021. Hann viti það vegna þess að um það leyti hafi Alfreð byrjað að skulda honum í versluninni og fyrir vikið hætt að venja komur sínar í búðina. Þrátt fyrir fyrrnefnda reiði í garð hjónanna og sonarins hafi Alfreð verið rólegur. Þó hafi verið erfitt að segja hvort hann væri á einhverjum efnum á þessum tíma. Yfirleitt hafi hann verið nokkuð stabíll en áréttaði að þetta væri fyrir næstum því fimm árum. „Upp úr 2021 fór þetta allt að versna hægt og rólega,“ sagði verslunareigandinn. Hann hefði heyrt talað um að einhverjar af þeim myndum sem hann hefði málað hefði hann farið með upp í sveit og kveikt í þeim. Verslunareigandinn rifjaði upp að Alfreð hefði sýnt honum myndir sem hann hefði málað í símanum sínum og rætt að hann sæi alls konar hluti í myndunum. „Sem að greinilega varð til þess að hann fór og kveikti í öllu saman.“ Verslunareigandinn sagði þá aldrei hafa verið vini, enda heilmikill aldursmunur, en Alfreð hefði verið svakalega duglegur og greindur drengur sem gat gert allt í höndunum. Myndirnar sem hann hefði málið í seinni tíð hefðu verið abstrakt, mikið til af drottni guði og slíku. Hann hefði rétt heilsað upp á hann á götunum síðustu ár, boðið góðan daginn. „Maður sá hann á götunum og hvernig hann arkaði,“ sagði verslunareigandinn til marks um að Alfreð hafi verið farinn að glíma við veikindi. „Ég hitti hann kannski á götu og heilsaði upp á hann. Hvað segirðu í dag? Ekkert öðruvísi.“ Saksóknari sýndu nokkur myndskeið fyrir dómi af Alfreð Erlingi á bensínstöð Olís í Neskaupstað um kvöldmatarleytið 21. ágúst, daginn áður en hann var handtekinn. Þar sést Alfreð á vappi fyrir utan bensínstöðina og sömuleiðis kaupa sér eitthvað þar inni og tylla sér. Taldi saksóknari sjást á myndskeiðunum að hann væri með eitthvað með skafti í jakka sínum. Hann er grunaður um að hafa banað hjónunum með hamri. Hann sést á einu myndskeiðinu drepa í sígarettu sinni við bensínstöðina og ganga ákveðið af stað þaðan. Alltaf er höndin í vasa hægra megin á úlpu sinni eins og hann sá að gæta að einhverju. Þá er klukkan að verða hálf sjö að kvöldi. Þremur mínútum síðar sést Alfreð á eftirlitsmyndavél ganga fram hjá næsta húsi við hús hjónanna.
Rannsókn á andláti hjóna í Neskaupstað Dómsmál Fjarðabyggð Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira