Valskonur unnu meistarana Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. febrúar 2025 21:07 Dagbjört Dögg Karlsdóttir reyndist mikilvæg fyrir Val á lokamínútunum í Keflavík. vísir/anton Þrátt fyrir að hafa misst niður 23 stiga forskot vann Valur góðan útisigur á Íslandsmeisturum Keflavíkur, 73-77, í efri hluta Bónus deildar kvenna í körfubolta í kvöld.
Valskonur voru miklu sterkari í fyrri hálfleik og leiddu með 23 stigum að honum loknum, 24-37. Keflvíkingar mættu ákveðnir til leiks í seinni hálfleik og unnu 3. leikhlutann, 31-10. Heimakonur náðu svo forystunni í upphafi 4. leikhluta. Thelma Dís Ágústsdóttir kom Keflavík í 69-64 þegar fimm og hálf mínúta var eftir. Keflvíkingar skoruðu hins vegar aðeins fjögur stig eftir það gegn þrettán stigum Valskvenna. Dagbjört Dögg Karlsdóttir jafnaði með þriggja stiga körfu þegar tvær mínútur og fimmtíu sekúndur voru eftir, 71-71, og Valur komst svo í 71-75. Jasmine Dickey minnkaði muninn í 73-75 en Dagbjört kláraði leikinn á vítalínunni. Lokatölur 73-77, Val í vil. Alyssa Cerino skoraði átján stig fyrir Val, tók níu fráköst og gaf sex stoðsendingar. Jiselle Thomas skoraði einnig átján stig fyrir gestina og Dagbjört var með fjórtán stig. Sara Líf Boama skoraði tíu stig og tók tólf fráköst. Dickey var einu sinni sem oftar atkvæðamest hjá Keflavík með þrjátíu stig og sjö fráköst. Anna Lára Vignisdóttir skoraði tólf stig og Bríet Sif Hinriksdóttir tíu. Tvíburasystir hennar, Sara Rún, var aðeins með fimm stig í leiknum og klikkaði á sjö af níu skotum sínum. Valur, sem hefur unnið tvo leiki í röð, er í 5. sæti deildarinnar með átján stig en Keflavík í 4. sætinu með 24 stig.
Bónus-deild kvenna Valur Keflavík ÍF Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Sjá meira