Orri og félagar duttu út með hádramatískum hætti Ágúst Orri Arnarson skrifar 1. apríl 2025 22:19 Orri Steinn Óskarsson er að jafna sig af veikindum og kom inn á framlengingunni. Getty/Octavio Passos Orri Steinn Óskarsson og félagar í Real Sociedad duttu út úr spænska bikarnum eftir hádramatískan leik og einvígi gegn Real Madrid sem endaði 5-4. Orri kom inn á seinni hálfleik framlengingar, eftir að sjö mörk voru skoruð í venjulegum leiktíma. Antonio Rudiger skallaði Madrid svo áfram í úrslitaleikinn á 115. mínútu.
Madrid var með 1-0 forystu eftir fyrri leikinn, sem fór fram í febrúar á heimavelli Sociedad. Sá leikur var fremur tíðindalítill en allt annað var uppi á teningunum í kvöld. Ander Barrenetxea skoraði fyrir Sociedad og jafnaði einvígið eftir aðeins stundarfjórðung, en Endrick kom Madrid aftur yfir áður en fyrri hálfleik lauk. Tvö mörk Sociedad um miðjan seinni hálfleik settu síðan allt í uppnám fyrir Madrid. David Alaba setti boltann óvart í eigið net og Mikel Oyarzabal skoraði síðan þriðja mark Sociedad. Þá þurfti Madrid að sækja og gerði það af krafti, Jude Bellingham og Aurelien Tchouameni skoruðu mörk með skömmu millibili. Eftir svaðalega sveiflukenndan leik stefndi þá í 3-3 jafntefli í leiknum og 4-3 sigur Madrid í einvíginu, en á þriðju mínútu uppbótartíma setti Mikel Oyarzabal sitt annað mark og sendi leikinn í framlengingu, með 4-3 sigur Sociedad en jafna 4-4 stöðu í einvíginu. Orri Steinn kom inn á í seinni hálfleik framlengingar, nýbúinn að jafna sig af veikindum. Leikurinn fór hins vegar ekki í vítaspyrnukeppni því Antonio Rudiger reis upp á 115. mínútu og stangaði boltann í netið eftir hornspyrnu Arda Guler. Lokatölur leiksins 4-4 en 5-4 fyrir Madrid í einvíginu. Real Madrid mun mæta annað hvort Barcelona eða Atlético Madrid í úrslitaleiknum. Staðan í því einvígi er 4-4 eftir fyrri leikinn og seinni leikurinn fer fram á morgun.
Spænski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira