„Ekki fyrst stóra ákvörðunin sem hann tekur á móti mínu liði á þessum velli“ Árni Gísli Magnússon skrifar 6. apríl 2025 19:44 Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR. Vísir/Vilhelm KA og KR skildu jöfn, 2-2, í fyrstu umferð Bestu deildar karla á Greifavellinum á Akureyri í dag. Óskar Hrafn Þorvaldsson sagðist fara glaður upp í flugvélina til Reykjavíkur en hafði ýmislegt að segja um leikinn.
KA og KR skildu jöfn, 2-2, í fyrstu umferð Bestu deildar karla á Greifavellinum á Akureyri í dag. KR komst í forystu snemma leiks en KA menn skoruðu tvö mörk áður en um langt leið og komust í 2-1 forystu. KR skoraði annað mark fyrir lok fyrri hálfleiks en engin mörk komu í þeim seinni og því skiptu liðin stigunum á milli sín. Undirritaður ræddi við Óskar beint eftir leik og fór hann um víðan völl í sinni greiningu á leiknum. „Mér líður bara vel, mér líður alltaf vel. Við fengum færi, við fengum þrjú dauðafæri til að koma okkur í góða stöðu; Jói (Jóhannes Kristinn Bjarnason) tvisvar og Eiður (Gauti Sæbjörnsson) einu sinni en svo auðvitað endum við tveimur færri þannig að ég get ekkert verið annað en sáttur með stigið.“ „Mér finnst það ekki vera einhver ósigur að fara með eitt stig frá Akureyri, ég sagði það fyrir leikinn og segi það aftur að einhverjir voru búnir að spá KA norður og niður en KA liðið er öflugt, það er rútínerað og massívt lið þannig að því leytinu til fer ég bara glaður upp í flugvélina til Reykjavíkur.“ Lítur á leikinn sem lærdóm Óskar hélt áfram og talaði um að frammistaðan hefði mátt vera betri en dregur mikinn lærdóm af leiknum. „Frammistaðan okkar var ekki á þeim stað sem við vildum að hún væri, mér fannst vera hrollur í mönnum, mér fannst við vera taugatrekktir og þegar hitastigið í leiknum eða stemningin, hún verður pínu öfgafull og mikil læti þá fannst mér við aðeins láta stjórnast af henni og vorum að flýta okkur og mikið en mér fannst það snarlagast í seinni hálfleik og ég lít bara á þennan leik sem frábæra lærdóm.“ „Við lærum að vera einum færri og tveimur færri og hvernig við bregðumst við því, ég reyndar á eftir að horfa á leikinn aftur en ég furða mig á því hvernig línan var í leiknum, hvernig við gátum endað tveimur færri á meðan mér fannst KA mennirnir komast upp með heldur meira en við. Að því sögðu þá fer ég sáttur með stigið en hins vegar veit ég að það er rosalega margt sem við getum bætt okkur í, enda eru 26 leikir eftir þannig að ég er ekkert sérstaklega stressaður yfir því en vel meðvitaður um það að við eigum að geta spilað betur. „Ég held að þessi leikur hafi verið skemmtilegur, hann var fram og til baka og við gerðum okkar besta til að reyna skora fleiri mörk og reyna vinna leikinn. Sáttur með stigið, frammistaðan hefði mátt vera betri en ég hef skilning á því, það eru taugar og það er stress og það er svona margt sem spilar inn í, við erum að fá marga leikmenn til baka sem eru kannski ekki alveg í sínu besta formi og þegar menn eru ekki í sínu besta formi þá hafa þeir tilhneigingu til að flækja hlutina en ekki einfalda þá, þannig það eru margar ástæður. Við tökum þetta bara með okkur í Vals leikinn sem er næstur.“ Jóhann verði að lifa með þessari ákvörðun Aron Sigurðarson fékk að líta beint rautt spjald eftir viðskipti við Andra Fannar Stefánsson undir lok venjulegs leiktíma og Hjalti Sigurðsson fékk sitt seinna spjald í uppbótartíma og þar með rautt. Óskar vildi ekki tjá sig um hvort ákvarðanirnar hafi verið réttmætar að hans mati en hafði þó frá ýmsu að segja. „Nei ég get ekkert sagt að það hafi verið röng ákvörðun að Hjalti hafi fengið annað gula spjaldið sitt fyrir að toga í leikmann, mér fannst menn sem voru á spjaldi eða fengu seint spjald komast upp með meira. Mér fannst línan ekki frábær í þessum leik en það er auðvitað bara eins og það er.“ „Spjaldið hans Arons, ég sé þetta ekki, ég er í snóker, Andri reif í hann og Aron reif í Andra og Andri reif svo aftur í hann og reynir Aron að losa sig og hvort það var viljandi eða ekki. Jóhann tekur þessa ákvörðun og hann verður að lifa með henni, hann verður að geta horft í spegil í kvöld þegar hann fer að bursta tennurnar og verið sáttur við sjálfan sig.“ „Ég vona svo sannarlega að hann verði það því þetta var stór ákvörðun, risastór ákvörðun, og alls ekki fyrsta stóra ákvörðunin sem hann tekur á móti mínu liði á þessum velli en ég vona bara að þetta hafi verið rétt hjá honum. Ég get ekki svarað þér“, sagði Óskar að endingu.
Besta deild karla KR KA Mest lesið „Bara „shout out“ á mömmu, takk fyrir þetta!“ Fótbolti Steini stóryrtur í lok fundar: „We´re gonna fuckin beat you“ Fótbolti Vann Meistaradeildina með Barcelona en vinnur nú í Intersport Fótbolti Rekinn sem slakasti stjóri í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Enski boltinn Guardiola hneykslaður á söngvum um móður Fodens Enski boltinn Neville hélt þrumuræðu um vélmennaboltann sem er að eyðileggja leikinn Enski boltinn Sjáðu glæsimark Rúnars Más og skrautlegt sjálfsmark á Hlíðarenda Íslenski boltinn Ísland - Ísrael: Aðgengi fjölmiðla að íslenska liðinu til skoðunar Handbolti Van Dijk tjáir sig um samningaviðræðurnar Enski boltinn „Ég horfði á leikinn og sparkaði tebollanum í gólfið“ Enski boltinn Fleiri fréttir LUÍH: Var gerð að fyrirliða Þróttar átján ára Tveir Bestu deildarslagir og bikarmeistararnir mæta KFA Sjáðu glæsimark Rúnars Más og skrautlegt sjálfsmark á Hlíðarenda „Sá það strax að boltinn myndi enda inni“ Uppgjörið: Fram - ÍA 0-1 | Stórglæsilegt mark Rúnars Más tryggði Skagamönnum sigurinn gegn Fram „Ekki fyrsta stóra ákvörðunin sem hann tekur á móti mínu liði á þessum velli“ Uppgjörið: KA - KR 2-2 | Tvö rauð á KR í markaleik á Akureyri „Stundum þá skapar maður bara sína eigin heppni með alvöru vinnuframlagi“ Uppgjörið: Valur - Vestri 1-1 | Óvænt stig Djúpmanna á Hlíðarenda Blikar byrjuðu vel með græna nögl á litla fingri Sjáðu fyrstu mörk Íslandsmótsins í ár: Var þetta víti? „Viðeigandi að fagna komu hennar með marki“ „Skrifast á ákveðinn sviðsskrekk“ Uppgjörið: Breiðablik - Afturelding 2-0 | Meistararnir með öruggan sigur í opnunarleiknum Erfiðasta frumraun félags í efstu deild í 36 ár Blikar hafa byrjað báðar titilvarnir sínar illa Íslenskir dómarar verða á samfélagsmiðlum í sumar „Sé þá ekki vinna í ár“ Besta-spáin 2025: Hamra járnið meðan það er heitt Segja að Valur hafi boðið meira en tvær milljónir í Úlfu Dís „Hef ekkert það miklar áhyggjur af þessum breytingum“ Besta-spáin 2025: Lífið eftir Arnar Bræður berjast og fjölskyldumeðlimir velja á milli Fantasy leikur Bestu deildarinnar kominn í loftið Grindvíkingar ætla að spila í Grindavík í sumar Þrjár kempur spila með KV í sumar Blikar mættu með málningarpenslana í garðinn hjá Gylfa „Ef það er eitthvað lið sem getur veitt Breiðabliki og Víkingi keppni er það Valur“ Besta-spáin 2025: Siglt undir radarinn Veðmál á leik á Íslandi vöktu miklar grunsemdir Sjá meira