Vinnubrögð Carbfix eru ámælisverð Ólafur Sigurðsson skrifar 9. apríl 2025 20:32 Hafnarfjarðarbær hefur hafnað hugmyndum Carbfix um niðurdælingu á CO2-streymi undir iðnaðarsvæðið við Vellina. Umfangið á þessari framkvæmd var gríðarlegt og fyrirsjáanleg mikil umhverfis- og samfélagsleg áhrif. Mörgum íbúum er því óskiljanlegt hversu seint upplýsingar um framkvæmdina komu fram þó svo að bæjarstjórinn, Rósa Guðbjartsdóttir hefði haft þær undir höndum um langa hríð. Órjúfanlegur þáttur þessa var svo uppbygging risavaxinnar stórskipastöðvar í Straumsvík. Ætlunin var að dæla um 3 milljónum tonna árlega með möguleika á að stórauka það magn skv. viðskiptaáætlunum frá Morgan Stanley-bankanum. Til þess þyrfti um 25 sinnum það magn af vatni og einnig gríðarlegt magn af heitu vatni og rafmagni til að dæla þessu öllu undir um 100 ferkílómetra lands. Það eru vongbrigði að bæjarfulltrúar hafi látið þetta mál ganga svona langt án nægilegs samráðs við bæjarbúa og að framkvæmdaraðili hafi svo notað þá velvild sem þar var sýnd til að kynna viðskiptavinum sínum „mikinn stuðning í nærsamfélaginu“ sem reyndist síðan alrangt! Bæjarfulltrúum og þáverandi bæjarstjóra ber að starfa í umboði íbúa en ekki fyrirtækja sem sækjast eftir aðgangi að auðlindum okkar og aðstöðu. Málefnið átti því fullt erindi við bæjarbúa frá upphafi sem höfðu miklar áhyggjur af áhrifum á útsýni og mögulega verðlækkun á fasteignum með fyrirhugaðan risaúrgangsgeymi í bakgarðinum. Skipulagt íbúða- og iðnaðarsvæði á aldrei að gera að tilraunasvæði. Upplýsingar um hreinleika CO2-efnastraumsins hafa verið villandi þar sem forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur talar um að þetta sé eins og gosdrykkur og fleiri hjá Carbfix hafa talað um að þetta sé bara alls ekki eitrað og vel drykkjarhæft! Þó er ljóst af gögnum að um 0,2% af ýmsum snefilefnum fylgja með og í þessu gífurlega magni niðurdælingar geta verið tugir, jafnvel hundruðir tonna af meðal annars stórhættulegum þrávirkum eiturefnum sem sitja svo í jarðveginum eftir 30 ár. Svar Carbfix hefur ætíð verið að gera lítið úr magni þeirra eiturefna sem fylgja streyminu og hefur Sandra Snæbjörnsdóttir yfirvísindakona Carbfix sagt að „.... fyrir utan vatn séu þau helst efni úr andrúmsloftinu: súrefni, nitur og vetni.“ Ekki taldi hún til hættulegu eiturefnin sem eru þarna líka eða að í 3 milljónum tonna CO2 streymis gæti fylgt allt að 300 tonnum af blásýru á ári og tugir tonna af þrávirkum fituleysanlegum eiturefnum sem geta valdið fósturgöllum, krabbameini og hafi veruleg áhrif á sjávarlíf. Það er ekki vísindalegt að tala svona. Þá er einnig þrefað um að ekki skuli tala um hámarksgildi í töflunni yfir eiturefnin sem fylgja CO2 streyminu, heldur skuli reikna rétt! Íbúar óttast hámarksgildin en aðrir telja að lágmarksgildin skuli vera rétta talan og svo að ekki megi nota prósentur heldur skuli miða við mólmassa osfrv. - en þó svo að hægt væri að sættast á að notast við miðgildin í eiturefnatöflunni þá eru samt alltaf þúsundir tonna af eiturefnum sem munu fylgja árlega 3 milljónum tonna af CO2 streyminu, hvað þá ef það yrði helmingi meira! .... en samt er þrefað. Einnig hefur komið fram að berglögin sem ná undir Hafnarfjörð, Garðabæ og Kópavog gætu tekið við mun meira magni en þetta! CO2 þykkni á markaði er reyndar mjög mismunandi, allt eftir tegund iðnaðaruppsprettu og hreinsunaraðferð. Kostnaður föngunar- og hreinsunaraðila fer eftir loka hreinleikastiginu vegna umtalsverðs kostnaðar við að hreinsa þykknið. Það getur því verið mun meiri hagnaður við að dæla niður mjög menguðum vökva en hreinum en það er annað mál. Ótal skýrslum og sérfræðiálitum hefur verið hampað til að gera lítið úr áhyggjum íbúa. Mætti benda Carbfix á að taka einnig mark á skýrslu frá Háskóla Íslands um viðbrögð Carbfix sem virðist oft gera lítið úr skoðunum þeirra sem gagnrýna þessa niðurdælingu á efnastraumnum nálægt íbúðabyggð. Ljóst er að þessi vinnubrögð hafa skaðað trúverðugleika verkefnisins og er í skýrslunni bent á hvernig ætti að bæta samskiptin. Kynningarstjórn Carbfix hefur því fengið alvarlega gagnrýni eða nánast falleinkunn skv. mati sérfræðinga Háskólans. Ágengni starfsmanna Carbfix er ámælisverð og óheiðarleg, ekki bara að mati Hafnfirðinga. Carbfix hefur gert lítið úr skoðunum þeirra sem gagnrýna, komið fram með hálf-sannleika, sýnt óheiðarleika og sölumennsku sem hæfir ekki vísindafólki - enda eru gríðarlegir fjármunir í húfi. Framkoma Carbfix gagnvart Hafnfirðingum líkist einfaldlega meira svindli en heiðarlegri kynningu á mikilvægu verkefni. Mátti til dæmis heyra af viðtölum í fjölmiðlum við sveitarstjórnarmenn í Ölfusi og Húsavík að við Hafnfirðingar skildum ekki málið og ættum bara að kynna okkur þetta betur! Carbfix er ekki hætt við niðurdælingu í Hafnarfirði! Nú síðast heyrðist á fundi Carbfix á Húsavík að það hafi sett Hafnarfjarðarverkefnið á ís! Sum sé, þessu er ekki lokið, það bíður bara betri tíma. Guðmundur Árni Stefánsson formaður Samfylkingarinnar í Hafnarfirði hefur sagt ,, .... það hefur einhver ótti búið um sig meðal hluta íbúanna. Það þyngir auðvitað róðurinn í málinu.“ Það er nefnilega það, fólk er hrætt við að fá þetta í bakgarðinn og að Carbfix skuli segja þetta á fundinum á Húsavík hjálpar ekki til. Þessu átti að vera lokið! Fólkið er kvíðið vegna þessa og á ekki skilið að þurfa að standa í svona átökum. Það stendur sum sé enn til að dæla niður í Hafnarfirði samkvæmt Carbfix og við megum bara búa við það? – Sem sagt, þegar ,,hagstæð“ bæjarstjórn kemst til valda gætu samningar náðst – eða hvað eigum við að halda, íbúar í Hafnarfirði? Carbfix vantar þá bara velvilja hjá réttum bæjarfulltrúm og ekki mun vanta ásetning hjá Carbfix sem bíður þolinmótt eftir rétta tækifærinu enda leggur fyrirtækið upp með að það sé verið að bjarga heiminum frá hörmungum lofstlagshamfara og að við íbúarnir eigum fáum að taka þátt í því! Carbfix er þegar búið að kosta miklu til við uppbygginguna við Straumsvík og Vellina og virðist ætla að nýta þá fjárfestingu ef færi gefst. Meirihluti Hafnfirðinga vill alls ekki fá þetta verkefni í bakgarðinn sinn og við eigum heldur ekki að þurfa að standa í svona baráttu fyrir bænum okkar og búsetuöryggi til framtíðar. Rétt er að taka fram að hér er ekki verið að gagnrýna aðferðina sjálfa, steindun, - eða árangur hennar eins og margoft hefur verið bent á, heldur staðsetningu hennar við íbúðarbyggð, nálægð við vatnslindir, dvergbleikjustofninn og svo hættuleg eiturefni sem geta fylgt CO2 efnastraumnum ofl. Við íbúar höfum fullan rétt á að hafna þessum áætlunum. Því í ósköpunum er ekki farið með þetta verkefni lengra frá byggð? Vinnubrögð framkvæmdaraðila minnir stundum á starfsemi glæpasamtaka en eðlilegt samstarfsverkefni við bæjaryfirvöld og íbúa Hafnarfjarðar. Fullyrðingin um að ,,Þetta verkefni sé á ís“ er einfaldlega enn önnur ógnin sem við Hafnfirðingar upplifun frá þessu fyrirtæki. Við óttumst að þessi vinnubrögð gætu orðið raunin gagnvart fleiri sveitarfélögum eins og í Ölfusi og á Húsavík. Því er þetta skrifað, til að vara aðra við þessum aðilum og vinnubrögðum þeirra. Höfundur er matvælafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Hafnarfjörður Mest lesið Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Skoðun Skoðun Breytum þessu! Jón Guðni Guðmundsson skrifar Skoðun Sorp víkur fyrir mannlífi Hjördís Ýr Johnson skrifar Skoðun Úr vörn í sókn: Reksturinn aldrei sterkari í Hveragerði Lárus Jónsson,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Af svifryki, strætó og sjálfstæðum krökkum Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gerum Fjarðabyggð spennandi fyrir ungt fólk Anna Þórhildur Kristmundsdóttir,Júlíus Óli Jacobsen,Magnea María Jónudóttir,Þórunn Ólafsdóttir skrifar Skoðun Af hverju skiptir máli að kjósa í Garðabæ? Bryndís Matthíasdóttir skrifar Skoðun Allir íbúar Kópavogs skipta máli Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Our home, our vote, our future Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Er borgarlínan bókstafsins virði? Ævar Örn Jóhannsson skrifar Skoðun Borgarlínan er háskaleg tilraun Karólína Jónsdóttir skrifar Skoðun Af hverju flytjum við fólkið, í stað þjónustunnar? Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Traustur fjárhagur er ekki tilviljun Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller skrifar Skoðun Enginn á að standa einn Joanna (Asia) Mrowiec skrifar Skoðun Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar Skoðun Sala á opinberum eignum Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Valdimar Víðisson hlustar: Það sem ég lærði af Coda Terminal Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Vörumst vinstri stjórn og eftirlíkingar í Hafnarfirði Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar Skoðun Lífsgæði fyrir alla - Áhersluatriði Öldungaráðs Viðreisnar Sverrir Kaaber skrifar Skoðun Kársnes á krossgötum Máni Þór Magnason skrifar Skoðun Samgöngumál í ólestri í Hafnarfirði - aðgerða þörf strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Falið fagstarf frístundaheimila Hafdís Oddgeirsdóttir,Viktor Orri Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvað verður um Ylju neyslurými? Bjartur Hrafn Jóhannsson,Hákon Skúlason skrifar Skoðun Áfram og upp Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Kennarar þurfa ekki skammir heldur stuðning okkar Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Ný Heiðmörk fyrir Reykvíkinga Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerum miðbæ Garðabæjar iðandi af lífi og menningu Vilmar Pétursson skrifar Skoðun Betri Hafnarfjörður Árni Stefán Guðjónsson skrifar Sjá meira
Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun
Skoðun Úr vörn í sókn: Reksturinn aldrei sterkari í Hveragerði Lárus Jónsson,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Gerum Fjarðabyggð spennandi fyrir ungt fólk Anna Þórhildur Kristmundsdóttir,Júlíus Óli Jacobsen,Magnea María Jónudóttir,Þórunn Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar
Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar
Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun