Skagamenn og Selfyssingar í sextán liða úrslit Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. apríl 2025 15:56 Viktor Jónsson skoraði fyrsta mark Skagamanna á Seltjarnarnesinu í bikarsigrinum á Gróttu í dag. Bestu deildar lið ÍA og Lengjudeildarlið Selfoss komust í dag áfram í sextán liða úrslit Mjólkurbikars karla í fótbolta.
ÍA og Selfoss bættust þar með í hópinn með ÍBV, Kára, Víkingi Ó., Keflavík og Aftureldingu sem komust þangað í gær. ÍA sló út Gróttu á Seltjarnarnesi en Selfoss vann Haukana á Selfossi. ÍA vann 4-1 sigur á Gróttu. Ómar Björn Stefánsson skoraði tvívegis fyrir Skagaliðið í leiknum. Viktor Jónsson kom Skagamönnum í 1-0 á 38. mínútu og Ómar Björn Stefánsson bætti við marki eftir fjögurra minútna leik í seinni hálfleik. Caden Robert McLagan minnkaði muninn í 2-1 á 53. mínútu en Ómar kom Skagamönnum aftur tveimur mörkum yfir aðeins tveimur mínútum síðar. Fjórða mark Skagamanna skoraði varamaðurinn Gísli Laxdal Unnarsson á 63. minútu og úrslitin voru ráðin. Lengjudeildarlið Selfoss vann 4-0 sigur á C-deildarliði Hauka á heimavelli sínum. Elvar Orri Sigurbjörnsson og Frosti Brynjólfsson komu Selfyssingum í 2-0 á fyrstu 26 mínútum leiksins. Elvar Orri skoraði síðan þriðja markið á 68. mínútu og gerði endanlega út um leikinn. Selfyssingar voru ekki hættir því aðeins tveimur mínútum síðan var staðan orðin 4-0 eftir mark frá fyrirliðanum Ívani Breka Sigurðssyni. Það urðu lokatölur. Völsungur og Þróttur gerðu 2-2 jafntefli og þar stendur framlenging yfir. Heimamenn komust í 2-0 en Þróttarar jöfnuðu í lok leiks.
Mjólkurbikar karla ÍA UMF Selfoss Grótta Haukar Mest lesið Þema í tapleikjum Liverpool á þessu ári Enski boltinn Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Handbolti Efins um að ráða Carrick til frambúðar: „Maður er brenndur af fyrri tíð“ Enski boltinn „Ég held ég sé komin með nóg af karlmönnum í bili“ Sport Mark í uppbótartíma tryggði botnliðinu sigur gegn Liverpool Enski boltinn Börsungar úr leik þrátt fyrir öruggan sigur í kvöld Fótbolti Mark í framlengingu framlengir bikarævintýri Port Vale Enski boltinn Keypti Cucurella af því að Man City vildi hann Enski boltinn Tapaði hlaupinu af því að forystubíllinn lét hana hlaupa kolranga leið Sport Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Körfubolti Fleiri fréttir Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Íslensk félög greiddu yfir fimm milljónir í sektir Arnar og Bjarki fengu gullmerki ÍA á sama tíma Jasmín á gamlar slóðir yngri bróður síns Viðar tekur slaginn með Selfossi Hallgrímur framlengir við KA „Engar áhyggjur af framtíð liðsins“ Kominn með nóg af flakkinu Víkingur og Breiðablik unnu bæði 1-0 sigra í kvöld Sjá meira