Sport

„Út með ruslið og inn með íþróttaandann“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Brynjar Karl Sigurðsson býður sig fram til forseta Íþrótta- og Ólympíusambandsins.
Brynjar Karl Sigurðsson býður sig fram til forseta Íþrótta- og Ólympíusambandsins. vísir

Brynjar Karl Sigurðsson hefur ákveðið að bjóða sig fram til forseta ÍSÍ. Það gerir hann eftir langa baráttu við ríkjandi öfl og núverandi valdhafa, sem Brynjar líkir við mafíustarfsemi. Hann fór yfir sín helstu áherslu- og stefnumál í viðtali sem var tekið fyrr í dag og má finna í heild sinni hér fyrir neðan.

Farið var yfir víðan völl í viðtalinu en helst ber að nefna að Brynjar telur sigurlíkurnar litlar, frekar sér hann tækifæri til að opna á mikilvæga umræðu og koma ákveðnum málefnum á framfæri. Þá hafi hann meira vægi sem forsetaframbjóðandi en körfuboltaþjálfari.

Stefnumálin sem hann setti fram á Facebook í gærkvöldi voru „satíra og góð leið til að vekja athygli.“

Brynjar er gagnrýninn í garð fráfarandi forseta, Lárusar Blöndal, og líkir honum við mafíósann Al Capone. Sjálfum sér líkti hann við Elliott Ness, lögregluþjóninn sem kom Capone í fangelsi.

Þá sagði hann einnig frá sinni reynslu og hefur á ýmsa vankanta að benda eftir áralanga baráttu við valdhafa í íþróttahreyfingunni.

Sjá einnig: Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem for­seta ÍSÍ

Brynjar segist ekki maður sem lætur aðra ganga í verkin, hann geri það sjálfur og muni ekki skorast undan þegar að íþróttapólitíkinni kemur, sem hann segir engu minna mikilvæg en önnur pólitík.

Honum líst illa á mótframbjóðanda sinn Olgu Bjarnadóttur en vel á Willum Þór Þórsson, að því gefnu að tíminn í ríkisstjórn hafi ekki linað gamla þjálfarann. Helst myndi Brynjar vilja að Willum tæki með honum fund og tæki í kjölfarið upp hanskann fyrir hann.

Viðtalið við Brynjar má finna í heild sinni í spilaranum að ofan. Hér fyrir neðan má sjá innslag úr Sportpakkanum á Stöð 2 þar sem dregin voru saman helstu atriði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×