Tímabilinu líklega lokið hjá Orra Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. maí 2025 10:30 Orri Steinn Óskarsson meiddist á æfingu á fimmtudaginn. getty/Juan Manuel Serrano Arce Orri Steinn Óskarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta, leikur væntanlega ekki meira með Real Sociedad á tímabilinu.
Orri meiddist aftan í læri á æfingu hjá Real Sociedad og félagið greindi í kjölfarið frá því að hann myndi líklega ekki spila meira með á tímabilinu. Real Sociedad keypti Orra frá FC Kaupmannahöfn í lok ágúst á síðasta ári. Hann hefur spilað 23 leiki í spænsku úrvalsdeildinni í vetur og skorað þrjú mörk. Orri lék auk þess fimm leiki með Real Sociedad í spænsku bikarkeppninni og skoraði fjögur mörk í níu leikjum í Evrópudeildinni. Real Sociedad er í 11. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar með 42 stig. Liðinu hefur gengið illa að skora í vetur. Það hefur aðeins gert 32 mörk í 33 deildarleikjum en einungis fjögur lið hafa skorað færri mörk. Orri er annar Íslendingurinn sem leikur með Real Sociedad en Alfreð Finnbogason spilaði 27 leiki og skoraði fjögur mörk með liðinu tímabilið 2014-15. Íslenska landsliðið mætir Skotlandi og Norður-Írlandi í tveimur vináttulandsleikjum 6. og 10. júní. Orri verður væntanlega í kapphlaupi við tímann að ná þeim leikjum. Hann hefur skorað sjö mörk í sextán leikjum fyrir landsliðið og var gerður að fyrirliða þess þegar Arnar Gunnlaugsson tók við því fyrr á þessu ári.
Spænski boltinn Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ Sjá meira