Farþegum fjölgaði um 24 prósent í apríl Lovísa Arnardóttir skrifar 6. maí 2025 18:08 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Sigurjón ólason Icelandair flutti 381 þúsund farþega í apríl, 24 prósent fleiri en í apríl 2024. Það sem af er ári hefur félagið flutt yfir 1,2 milljón farþega. Í mánuðinum voru 29 prósent farþega á leið til landsins, 19 prósent frá landinu, 47 prósent voru tengifarþegar og fimm prósent ferðuðust innanlands. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Icelandair.
Þar segir að framboð sé mælt framboðnum sætiskílómetrum hafi aukist um 25 prósent frá apríl á síðasta ári og farþegaflutningar mældir í seldum sætiskílómetrum hafi einnig aukist um 25 prósent. Sætanýting var samkvæmt tilkynningunni 81 prósent og stundvísi var 91 prósent, þremur prósentustigum hærri en í apríl í fyrra. Seldir blokktímar í leiguflugi voru samkvæmt tilkynningunni 82 prósent fleiri en í apríl í fyrra og fraktflutningar jukust um 12 prósent. Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um 3 prósent. „Við sjáum áframhaldandi góðar farþegatölur en farþegaflutningar jukust um 25 prósent miðað við apríl í fyrra. Þessi vöxtur var knúinn áfram af 25 prósent aukningu í framboði milli ára þar sem við hófum seinni tengibankann í Keflavík fyrr en áður, sem er hluti af stefnu okkar að vaxa utan háannar til þess að jafna árstíðabundna sveiflu og nýta innviði okkar betur allt árið um kring,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í tilkynningunni. Tímasetning páska jákvæð Hann segir tímasetningu páskana í ár hafa haft jákvæð áhrif á eftirspurn í leiðakerfinu. „Það er ánægjulegt að fjöldi farþega á markaðnum frá Íslandi jókst um 37 prósent sem staðfestir sterka stöðu Icelandair á heimamarkaði sem það flugfélag sem Íslendingar kjósa að ferðast með. Þá fjölgaði farþegum á markaðnum til Íslands um 31 prósent auk þess sem fjöldi tengifarþega jókst um 20 prósent. Þessi mikli vöxtur á framboði leiddi til sterkrar tekjumyndunar þar sem tekjur á hvern seldan kílómetra héldust óbreyttar á milli ára,“ segir Bogi. Þá segir hann rekstur leiðakerfisins hafa gengið vel í apríl. „Árangurinn er sérstaklega ánægjulegur í ljósi þess að flugáætlun félagsins í apríl hefur aldrei verið stærri ásamt því að öll páskaumferðin féll innan mánaðarins. Þessi árangur er fyrst og fremst að þakka frábærri frammistöðu starfsfólks félagsins og áframhaldandi áherslu okkar á skilvirkni í rekstrinum.“
Ferðaþjónusta Fréttir af flugi Icelandair Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira