Innlent

Að­gerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Margrét Helga Erlingsdóttir les kvöldfréttir klukkan hálfsjö.
Margrét Helga Erlingsdóttir les kvöldfréttir klukkan hálfsjö. Vísir

Umhverfisráðherra boðar aðgerðir gegn kínversku verslunarrisunum Temu og Shein. Það sé ólíðandi að vörur sem innihalda skaðleg efni séu flutt inn til landsins í bílförmum. Til skoðunar er að gera greiðslumiðlunarfyriræki eða flutningsfyrirtæki ábyrg og takmarka innflutning. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Vladimír Pútín Rússlandsforseti segist tilbúinn til viðræðna við stjórnvöld í Úkraínu. Leiðtogar segja jákvæð skref hafa verið stigin í átt að friði. Við förum yfir stöðu mála.

Tvívegis hefur verið reynt að brjótast inn í sama hraðbankann í Hafnarfirði á hálfu ári. Við hittum aðstoðaryfirlögregluþjónn sem segir nýtt að sprengiefni séu notuð í þessum tilraunum.

Landsbjörg skorar á stjórnvöld að afnema virðisaukaskattsskyldu björgunarsveita, og telja það geta sparað tugi milljóna á ári hverju. Við hittum formann félagsins sem kallar einnig eftir því að brugðist verði við húsnæðisvanda viðbragðsaðila sem allra fyrst

Þá verðum við í beinni útsendingu frá Öskjuhlíð þar sem hlaupagarpar hafa lokið við yfir tvö hundruð kílómetra í bakgarðshlaupinu og kíkjum til Basel í Sviss þar sem opnunarhóf Eurovision fór fram í dag.

Í Sportpakkanum verðum við í stemningunni í Garðabænum þar sem úrslitaeinvígi Stjörnunnar og Tindastólsí Bónus deildinni í körfubolta heldur áfram í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×