Fótbolti

Um­boðs­menn Huijsen mættir til Madrídar

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Dean Huijsen var keyptur af Bournemouth fyrir minna en ári síðan og mun seljast fyrir margfalt meiri pening. 
Dean Huijsen var keyptur af Bournemouth fyrir minna en ári síðan og mun seljast fyrir margfalt meiri pening.  Crystal Pix/MB Media/Getty Images

Hinn tvítugi Dean Huijsen, miðvörður Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni, virðist vera á leið til Real Madrid, sem vill ganga frá félagaskiptum fyrir HM félagsliða. Umboðsmenn Huijsen eru sagðir mættir til Madrídar til að ganga frá samningum.

Huijsen er sagður vera með fimmtíu milljóna punda klásúlu í samningi sínum við Bournemouth, sem fjöldi félaga er tilbúinn að borga en hann er talinn helst vilja fara til Real Madrid.

Sky Sports greinir frá því að Real Madrid hafi sent og fengið samþykkt tilboð í leikmanninn í gær. Aðeins eigi eftir að ganga frá samningi, sem félagið vill gera sem fyrst og klára félagaskiptin í aukaglugganum 1.-10. júní, áður en HM félagsliða hefst.

Fabrizio Romano og Matteo Moretto, sérfræðingar í félagaskiptum fótboltamanna, greindu svo frá því í morgun að umboðsmenn Huijsen væru mættir til Madrídar til að semja.

Huijsen hefur átt frábært fyrsta tímabil hjá Bournemouth, eftir að hafa verið keyptur frá Juventus síðasta sumar fyrir um 15 milljónir evra. Hann er fæddur í Hollandi en flutti til Spánar aðeins fimm ára gamall og kaus að spila fyrir spænska landsliðið. Þreytti frumraun sína þar í mars á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×