Íslenski boltinn

Þeir bestu ( 10.-9. sæti): Hörku­tól með hæfi­leika

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leikmennirnir sem enduðu í sætum 10 og 9.
Leikmennirnir sem enduðu í sætum 10 og 9. grafík/heiðar

Hér er farið yfir þá leikmenn sem enduðu í 10. og 9. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992.

10. Ólafur Þórðarson

  • Lið: ÍA
  • Staða: Miðjumaður/kantmaður
  • Fæðingarár: 1965
  • Íslandsmeistari: 1993, 1994, 1995, 1996, 2001
  • Bikarmeistari: 1993, 1996
  • Leikir í efstu deild: 163
  • Mörk í efstu deild: 27
  • Stoðsendingar í efstu deild: 36
  • Leikmaður ársins: 1995
  • Þrisvar sinnum í liði ársins

Ein af myndunum sem lifir frá tímum Skagaveldisins á 10. áratug síðustu aldar er þegar Ólafur Þórðarson tók við Íslandsmeistarabikarnum eftir sigurinn í úrslitaleiknum 1996; hinum tilkomumikla svanasöngs þessa stórkostlega liðs. Ólafur veitti bikarnum viðtöku rogginn og stoltur á svip með kassann úti eins og venjulega; fullkomlega meðvitaður um hversu mikið afrek ÍA var. Þessi sena er einn frægasta táknmynd þessa fimmfalda Íslandsmeistaraliðs.

Ólafur Þórðarson lyftir Íslandsmeistarabikarnum eftir sigur ÍA á ÍBV, 5-1, í lokaumferðinni 1995.á sigurslóð

Ólafur er svo auðvitað hluti af annarri af stóru táknmyndum Skagaveldisins; sigrinum á Hollandsmeisturum Feyenoord 1993. Ólafur skoraði eina mark leiksins á Laugardalsvelli með frægum skalla. Það var ekki eina mikilvæga mark hans á þessu blómaskeiði ÍA. Hann skoraði meðal annars í bikarúrslitaleiknum 1996 gegn ÍBV með skoti af löngu færi.

Talandi um mörk þá skoraði Ólafur tíu slík í deildinni 1995. Eftir brotthvarf Mihajlos Bibercic til KR var ÍA ekki með neinn afgerandi framherja framan af tímabili og Logi Ólafsson brá þá á það ráð að nota Ólaf fremstan á miðjunni. Hann sýndi á sér nýjar hliðar og raðaði inn mörkum fyrri hluta tímabilsins. Þeim fækkaði eftir heimkomu tvíburanna um mitt sumar en ÍA varð Íslandsmeistari með miklum yfirburðum og Ólafur var valinn leikmaður ársins.

Ólafur er hálfgerð þjóðsagnapersóna, einhvers konar Íslendingasögu harðjaxl sem tók tólf tíma vakt á trukknum áður en hann mætti á æfingar eða í leiki. Sögurnar af honum eru geggjaðar og svo átti Ólafur auðvitað eitt besta augnablik íslensks íþróttasjónvarps þegar hann hífði sig upp á gám á annarri hendinni. En hann var líka þrusugóður fótboltamaður sem gat skorað og lagt upp og dreif liðin sín áfram með óbilandi sigurvilja og leiðtogahæfni.

9. Davíð Þór Viðarsson

  • Lið: FH
  • Staða: Miðjumaður
  • Fæðingarár: 1984
  • Íslandsmeistari: 2004, 2005, 2006, 2008, 2009, 2015, 2016
  • Bikarmeistari: 2007
  • Leikir: 240
  • Mörk: 10
  • Stoðsendingar: 24
  • Fjórum sinnum í liði ársins

Hetjurnar á blómaskeiði FH voru margar. En mikilvægasti leikmaður liðsins á þessum árum var kannski Davíð Þór Viðarsson. Fyrirliði, leiðtogi og hershöfðingi á miðjunni; sannkallað skaðræði fyrir mótherja en maður með samherjarnir vildu standa við hliðina á í stríði.

Davíð Þór Viðarsson fagnar Íslandsmeistaratitlinum 2008.

Davíð var aðeins sautján ára þegar hann lék alla átján deildarleikina er FH lenti í 3. sæti sem nýliðar 2001. Hann sneri aftur heim í Hafnarfjörðinn 2004 og átti sinn þátt í því að FH-ingar urðu Íslandsmeistarar í fyrsta sinn það sumarið. FH endurtók leikinn með miklum glans 2005 og svo aftur 2006.

Fjórði Íslandsmeistaratitilinn kom 2008 eftir eftirminnilega baráttu við Keflavík. Davíð var þá orðinn óskoraður leiðtogi FH-liðsins og ef Guðmundur Steinarsson hefði ekki átt mergjað tímabil hefði hann eflaust verið valinn leikmaður ársins. Davíð varð Íslandsmeistari í fimmta sinn 2009 en hélt svo aftur í atvinnumennsku.

Hann kom heim um mitt tímabil 2013 og næstu þrjú ár setti hann saman eitt flottasta skeið miðjumanns í sögu efstu deildar. Davíð var magnaður í FH-liðinu sem vann tvo Íslandsmeistaratitla og var nokkrum mínútum frá því að vinna þann þriðja án þess að tapa leik.


Tengdar fréttir

Þeir bestu: Fylgt úr hlaði

Vísir gerðist stórhuga og ákvað að setja saman lista yfir sextíu bestu leikmenn efstu deildar karla frá 1992. Listinn yfir þessa sextíu leikmenn birtist á næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×